„Þau áttuðu sig á því sjálf að þau réðu ekki við þetta“ Kristinn Haukur Guðnason skrifar 1. júní 2023 10:54 Ekki þurfti að fara í vörslusviptingu á býlinu. Mynd tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm Matvælastofnun (MAST) hefur bannað dýrahald á sauðfjárbýli á Vesturlandi og falið lögreglustjóra að gefa út ákæru. Bæði búpeningur og gæludýr eru þegar farin af bænum. „
Því miður var reynslan af þessu ágæta fólki að það hafði ekki getu, hæfni eða ábyrgð til að vera í búskap eða að halda dýr yfirleitt,“ segir Einar Örn Thorlacius, lögfræðingur MAST. MAST hefur heimild til að banna dýrahald tímabundið að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Eitt skilyrðið er það að búið sé að fara fram á það við lögreglustjóra að hann gefi út ákæru þess efnis að viðkomandi verði dæmdur frá því að halda dýr. MAST hefur þegar farið fram á það við Lögreglustjóra Vesturlands. Hann tekur ákvörðun um hvort að ákæra verði gefin út og síðan er það dómara að meta það endanlega hvort dýrahald verði bannað. Einar Örn segist geta séð fyrir sér, ef fallist verður á það, að bannið gildi í fimm eða tíu ár. Að svo stöddu sé málið komið úr höndum MAST. Gripirnir farnir af bænum Vísir og fleiri fjölmiðlar hafa nýlega fjallað um meint dýraníð og slæman aðbúnað dýra á bænum Höfða í Borgarfirði sem á að hafa viðgengist í um fimmtán. Einar Örn segir ekki vera um sama mál að ræða. Þetta tiltekna mál kom inn á borð MAST í janúar síðastliðnum. Einar Örn segir að MAST hafi þegar óskað eftir því að Lögreglustjórinn á Vesturlandi gefi út ákæru. „Það var erfiður tími í vetur og miklir frostakaflar. Ástandið á fénu var slæmt,“ segir hann. „Þegar allt var komið í óefni voru gripirnir fluttir burt eða afhentir fyrri eigendum.“ Ekki grunur um ofbeldi Ekki hafi þurft að fara í vörslusviptingu á dýrunum, það er taka þau með valdi af eigendum sínum. Á bænum voru kindur og nokkur gæludýr, svo sem hundar, en ekki annar búpeningur. Dýrin eru þegar komin til annars fólks og Einar Örn segir að það hafi gengið vel fyrir sig. Málið hafi einnig verið snöggunnið hjá MAST. Einar Örn segir að býlið hafi verið í rekstri en ekki lengi. „Þetta er vel meinandi fólk. Þau áttuðu sig á því sjálf að þau réðu ekki við þetta,“ segir hann. Þó að dýrin hafi verið vanrækt sé ekki grunur um neitt ofbeldi af hálfu eigendanna. „Það er ekki skemmtilegt að standa í þessu en við töldum rétt að gera þetta.“
Dýraheilbrigði Dýr Lögreglumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Bein útsending: Kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fleiri fréttir Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Bein útsending: Kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Sjá meira