Heiðdís nýr verkefnastjóri Krónunnar

Heiðdís Inga Hilmarsdóttir er með meistaragráðu í sjálfbærri þróun frá …
Heiðdís Inga Hilmarsdóttir er með meistaragráðu í sjálfbærri þróun frá Uppsalaháskóla ásamt því að vera menntaður vöruhönnuður úr Listaháskóla Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Heiðdís Inga Hilmarsdóttir er nýr verkefnastjóri á sviði sjálfbærni hjá Krónunni. Heiðdís mun leiða margvísleg verkefni sem stuðla að því að Krónan nái markmiðum sínum um sjálfbærni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu en það segir að í stefnu Krónunnar í málaflokki  sjálfbærni megi meðal annars nefna minnkun matarsóunar, að nota umhverfisvæna orkugjafa og lágmarka orkunotkun, sýna ábyrgð í vali á umbúðum og vera leiðandi í sorpflokkun. 

Haft er eftir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, um að ráðning Heiðdísar sé til marks um síaukna áherslu Krónunnar á sjálfbærni.

Heiðdís er með meistaragráðu í sjálfbærri þróun frá Uppsalaháskóla ásamt því að vera menntaður vöruhönnuður úr Listaháskóla Íslands. Hún hefur áður starfað hjá Havarí menningarsetri í Berufirði, í tæknideild Þjóðleikhússins, auk þess að hafa stofnað og rekið fyrirtæki og hannað og markaðssett eigin vörur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK