Norður-Kórea: Squid Game endurspegli ógeðfellt samfélag Suður-Kóreu Samúel Karl Ólason skrifar 12. október 2021 11:10 Netflix Þættirnir Squid Game frá Suður-Kóreu, sem hafa notið gífurlegra vinsælda á Netflix, eru allegóría fyrir ógeðfellt og stéttaskipt samfélag Suður-Kóreu. Það er samkvæmt vefsíðu frá Norður-Kóreu þar sem áróður ríkisstjórnar landsins er birtur.
Í grein á síðunni Arirang Meari.com segir að þættirnir endurspegli raunverulegt samfélag Suður-Kóreu og spillingu þar. Í mjög stuttu máli sagt og án spennuspilla fjallar Squid Game um fátækt og skuldsett fólk sem er fengið til að taka þátt í hinum ýmsu barnaleikjum þar sem tap þýðir dauði. Markmiðið er að standa einn eftir og vinna fúlgur fjár. Arirangmeari hefur eftir ónafngreindum sjónvarpsgagnrýnenda í Suður-Kóreu að þættirnir sýni ójafnt samfélag þar sem ríkt fólk komi fram við fátækt fólk eins og peð. „Sagt er að vegna þáttanna átti fólki sig á raunveruleika skepnulegs samfélags Suður-Kóreu þar sem mannverur eru drifnar áfram í öfgafullri samkeppni og manneðli þeirra þurrkað út,“ segir í greininni, samkvæmt frétt Reuters. Ríkisstjórn Kim Jong Un hefur að undanförnu beitt sér harkalega gegn íbúum Norður-Kóreu sem hafa horft á afþreyingarefni frá Suður-Kóreu og öðrum ríkjum. Sjá einnig: Fangelsi og jafnvel dauðadómur fyrir vörslu erlends afþreyingarefnis Arirang Meari eru reglulega notuð til að gagnrýna menningu í Suður-Kóreu, samkvæmt Reuters. Fyrr á þessu ári var síðunni beitt gegn K-pop. Þá var því haldið fram að poppstjörnur Suður-Kóreu væru þrælar stórfyrirtækja og lifðu ömurlegu lífi. Þá var því haldið fram á miðlinum í fyrra að myndin Parasite væri meistaraverk sem varpaði ljósi á raunverulega stéttaskiptingu í Suður-Kóreu.
Norður-Kórea Suður-Kórea Netflix Bíó og sjónvarp Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Innlent Fleiri fréttir Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Sjá meira