Geri mitt besta og sjáum svo hvað Gummi segir Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. október 2020 18:46 Magnús Óli Magnússon í leik með Val. vísir/bára
Magnús Óli Magnússon, leikmaður Vals í Olís deild karla í handbolta, var í dag valinn í A-landsliðið í handbolta er tveir leikmenn þurftu að draga sig úr hópnum. Hann ræddi við Gaupa fyrir Sportpakka Stöðvar 2 um valið og tíma sinn hjá Val. Fréttina úr Sportpakka kvöldsins má sjá í spilaranum hér að neðan. Magnús Óli hefur farið á kostum með Val undanfarin ár og beðið lengi eftir að fá tækifæri með landsliðinu. „Það var ömurlegt þegar ég meiddist eftir að hafa verið valinn fyrir tveimur árum en það er gott að geta komist inn í þetta núna og vonandi nýtt tækifærið,“ sagði Magnús Óli við Gaupa er þeir ræddu saman að Hlíðarenda í dag. „Ég geri mitt og svo sjáum við hvað Gummi [Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands] segir, auðvitað fer ég 100 prósent í þetta og langar að vera áfram. Ég geri mitt besta bara,“ sagði Magnús um möguleikann að fara með landsliðinu með HM á Egyptalandi í janúar næstkomandi. Magnús hefur tvívegis lent í erfiðum meiðslum á tíma sínum hjá Val. „Maður leitaði aðeins til íþróttasálfræðings. Það gerði gæfumun, hjálpaði manni að halda fókus og hjálpaði bara almennt mjög mikið.“ „Það er mikill hraði í boltanum hérna hjá Snorra [Steini Guðjónssyni]. Við hlaupum og æfum mikið, það eru mjög mikil gæði á æfingum hjá okkur,“ sagði Magnús um æfingarnar hjá Valsliðinu. Að lokum sagði Magnús Óli að uppgjöf hefði aldrei verið inn í myndinni. Klippa: Magnús Óli um landsliðssætið óvænta
Íslenski handboltinn Sportpakkinn Valur EM 2022 í handbolta Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Fleiri fréttir Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sjá meira