Lárus Ingi: Við hvílum okkur svolítið í fyrri hálfleik Jakob Snævar Ólafsson skrifar 1. febrúar 2023 21:31 Lárus Ingi Magnússon faðmar hér Rúnar Inga Erlingsson en sá síðarnefndi var fjarverandi í kvöld. Bára Dröfn Lárus Ingi Magnússon aðstoðarþjálfari liðs Njarðvíkur í Subway deild kvenna í körfubolta, sem gegndi hlutverki aðalþjálfara í fjarveru Rúnars Inga Erlingssonar, var ekki beinlínis skælbrosandi eftir stórsigur á liði Breiðabliks 85-45 fyrr í kvöld.
Samt sem áður var Lárus Ingi ánægður með sigurinn. Njarðvíkingar áttu í nokkru basli með gestina í fyrri hálfleik og voru níu stigum yfir 31-22 en tóku leikinn algjörlega yfir í seinni hálfleik. Í viðtali við fréttamann Vísis neitaði Lárus því þó að hafa haldið harðorða hálfleiksræðu yfir sínu liði. „Langt í frá. Við fórum aðeins yfir það að við vorum ekki í beint slæmum en ekki bestu ákvarðanatökuna í fyrri hálfleik. Vorum ekki að taka þessi skot okkar út úr sóknarflæði. Okkur vantaði að lengja sóknirnar og vera þolinmóðari. Varnaleikurinn sérstaklega í þriðja leikhluta var stórkostlegur. Við erum búin að gera þetta nokkrum sinnum í vetur. Við hvílum okkur svolítið í fyrri hálfleik en þetta er eitthvað sem við þurfum að fara að breyta.“ Þótt Breiðablik sé nokkuð neðar í deildinni og þrátt fyrir stórsigurinn var Lárus á því að þessi leikur gæti nýst liðinu í komandi átökum við efstu lið deildarinnar. „Blikarnir eru með hörkulið og þær kenndu okkur svolítið það að við getum náð langt í körfubolta með því einu að berjast. Við vitum að við erum betra körfuboltalið en Breiðablik en þær voru sérstaklega í fyrri hálfleik að berjast miklu meira en við. Það er eitthvað sem við þurfum að fara að gera í fjörtíu mínútur en ekki bara í tíu eða tuttugu eins og við höfum stundum verið að gera á móti þessum liðum.“ Stigahæsti leikmaður Njarðvíkinga í vetur og stigahæsti leikmaður deildarinnar, Aliyah Collier, náði ekki sömu hæðum í leik sínum og hún er vön en hún skoraði aðeins sex stig í leiknum en hún náði þó ellefu fráköstum. Lárus var spurður hvort að hann óttaðist að slíkt gæti gerst í leikjum gegn toppliðum deildarinnar þegar líklegra er að Njarðvíkingar þurfi meira á henni að halda. „Aliyah Collier er topp atvinnumaður og ég veit það að ef ég hefði verið með leik hérna sem hefði verið jafn í fjórða leikhluta þá hefði hún tekið liðið á sínar herðar og klárað þennan leik. Hún var frábær liðsmaður í dag, var meira að leiðbeina, var meira að hjálpa til. Ég hef aldrei og mun aldrei hafa áhyggjur af Aliyah Collier.“ Þessi stóri sigur Njarðvíkinga gaf fleiri leikmönnum tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Lárus tók undir að ástæða væri til bjartsýni um að Njarðvíkingar gætu nýtt betur breiddina í liðinu það sem eftir væri tímabilsins. „Við Rúni vorum einmitt að tala um það fyrir tveimur dögum síðan að þessir yngri leikmenn okkar þurfa að taka meira til sín þegar þær koma inn á. Hafa meiri trú á sjálfum sér. Þær gerðu það virkilega vel í dag. Krista var að spila sinn besta leik og svo Dzana hérna með sýningu. Við vitum hvað við eigum mikið af ungum stelpum. Þetta eru nákvæmlega leikirnir sem þær þurfa að nýta og þær gerðu það í dag. Ég er hrikalegur stoltur af þessum ungu stelpum hérna í dag,“ sagði Lárus Ingi Magnússon að lokum.
Subway-deild kvenna UMF Njarðvík Breiðablik Tengdar fréttir Leik lokið: Njarðvík - Breiðablik 85-45 | Kópavogsbúar sáu aldrei til sólar Fyrsti leikur nítjándu umferðar Subway deildar kvenna í körfubolta fór fram fyrr í kvöld í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Lið Njarðvíkur tók þar á móti liði Breiðabliks. Njarðvík hefur haft gott tak á Blikum og ekki breyttist það í kvöld, lokatölur 85-45. 1. febrúar 2023 20:00 Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Leik lokið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika Íslenski boltinn Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Fær þriggja leikja bann fyrir pungspark á Hlíðarenda Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Svanirnir hefja flug í úrslitakeppninni Sjá meira
Leik lokið: Njarðvík - Breiðablik 85-45 | Kópavogsbúar sáu aldrei til sólar Fyrsti leikur nítjándu umferðar Subway deildar kvenna í körfubolta fór fram fyrr í kvöld í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Lið Njarðvíkur tók þar á móti liði Breiðabliks. Njarðvík hefur haft gott tak á Blikum og ekki breyttist það í kvöld, lokatölur 85-45. 1. febrúar 2023 20:00
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti