Ríkið kaupir bóluefni af Pfizer fyrir 85 þúsund manns Birgir Olgeirsson skrifar 3. desember 2020 11:59 Íslenska ríkið mun skrifa undir samning við Pfizer í næstu viku. Skrifað verður undir samning Íslands við framleiðanda bóluefnis Pfizer í næstu viku um kaup á bóluefni sem dugar fyrir 85.000 einstaklinga. Vonir standa til að Pfizer fái skilyrt markaðsleyfi frá Lyfjastofnun Evrópu 29. desember þegar fjallað verður um hvort stofnunin geti mælt með því að lyfið verði tekið í notkun.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Þar segir að Ísland hafi þegar gert samning við fyrirtækið AstraZeneca um kaup á bóluefni sem dugir fyrir 115.000 einstaklinga. Það bóluefni er heldur ekki komið með markaðsleyfi í Evrópu en gert ráð fyrir að Lyfjastofnun Evrópu ljúki umfjöllun sinni um í janúar og þann 12. janúar verður fjallað um markaðsleyfi fyrir Moderna. Íslandi og öðrum EFTA ríkjum er tryggður sami aðgangur að bóluefnum og ríkjum Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur þegar gert samninga við sex lyfjaframleiðendur, þar með talda AstraZeneca, Pfizer og Moderna. Framkvæmdastjórnin semur um heildarmagn frá hverjum framleiðanda og skiptist það hlutfallslega milli þjóðanna. Hver þjóð gerir jafnframt beinan samning við þá framleiðendur sem hún hyggst kaupa af bóluefni og EFTA-þjóðirnar í gegnum Svíþjóð. Ísland hefur þegar gert samning varðandi AstraZeneca og er að ljúka varðandi Pfizer. Þá liggja fyrir drög að samningi við Moderna og Janssen (Johnson & Johnson). Í tilkynningunni kemur fram að gert sé ráð fyrir að fljótlega eftir að markaðsleyfi fæst fyrir bóluefni frá fyrirtæki, sem Ísland er með beinan samning við, verði fyrstu skammtar fluttir til landsins. Það sé þó fyrirséð að bóluefni sem fá markaðsleyfi verði deilt milli ríkja og komi því í takmörkuðu magni til að byrja með, þ.e. að ekki komi allt það magn sem samið hefur verið um í einu lagi. Vonast eftir hjarðónæmi á 1. ársfjórðungi 2021 Samningar gera flestir ráð fyrir að bóluefnin verði flutt til landsins af framleiðanda. Miðað er við að nota sömu dreifingaraðila og þegar dreifa lyfjum hér á landi fyrir þessi erlendu fyrirtæki. Drög liggja fyrir að samningi við dreifingaraðila fyrir þau fyrirtæki sem eru líklega fá fyrst markaðsleyfi. Sprautum og nálum verður dreift með bóluefnunum. Vinnuhópur á vegum sóttvarnarlæknis sér um að skipuleggja bólusetninguna en framkvæmdin er unnin í samvinnu við heilbrigðisstofnanir. Bólusetja þarf fólk tvisvar og er gert ráð fyrir að bólusett verði með tveggja til þriggja vikna millibili. Eftir það líður allt að mánuður þar til viðkomandi einstaklingur er kominn með mótefnasvar. Þetta getur þó að einhverju leyti verið misjafnt eftir því hvaða bóluefni á í hlut. Markmið bólusetningar er að vernda fólk fyrir sjúkdómnum og að ná upp hjarðónæmi sem hindrar útbreiðslu faraldursins. Til að ná hjarðónæmi er gert ráð fyrir að bólusetja þurfi a.m.k. helming þjóðarinnar. Hér er gert ráð fyrir að um 75% landsmanna verði bólusettir. Gera má ráð fyrir að ferlið hefjist fljótlega eftir áramót og að markmiðum bólusetningar verði vonandi náð á fyrsta ársfjórðungi ársins 2021.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Heilbrigðismál Lyf Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Innlent Eldgosinu lokið eftir 54 daga Innlent Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Innlent Fleiri fréttir Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Sjá meira