Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Samúel Karl Ólason skrifar 28. mars 2024 17:55 Skipið lenti á einum burðarstólpa brúarinnar á töluverðum hraða. AP/Matt Rourke Stýrimaður gámaflutningaskipsins sem lenti á Francis Scott Key-brúnni í Baltimore í Bandaríkjunum á þriðjudag hafði kallað eftir aðstoð dráttarbáts nokkrum mínútum áður en skipið lenti á brúnni. Hann hafði einnig tilkynnt að skipið hafði misst afl, samkvæmt upptökum úr samskiptakerfi skipsins.
Rannsakendur segja að brúin, sem reist var árið 1976, hafi ekki verið byggð með nútíma öryggisstaðla í huga og því hefði hún verið viðkvæmari en nýrri brýr og meiri líkur á því að hún myndi hrynja við slys sem þetta. Verið var að sigla skipinu úr höfn í Baltimore þegar það missti afl og lenti af miklum krafti á einum af burðarstólpum brúarinnar. Stór hluti hennar hrundi nánast samstundis en átta verkamenn voru á brúnni við viðgerðir. Tveimur var bjargað samdægurs, tvö lík fundust í nótt og fjögurra er enn saknað og hefur leit verið hætt í bili. Sjá einnig: Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Samkvæmt frétt Reuters fundust líkin tvö í bíl sem fannst á sjávarbotni á tæplega átta metra dýpi en aðstæður til leitar eru hættulegar fyrir kafara vegna mikils braks og þá er útlit fyrir að aðrir bílar sitji fastir undir braki úr brúnni Höfnin í Baltimore, sem er ein mest notaða höfn á austurströnd Bandaríkjanna, er lokuð og verður það líklega um nokkuð skeið. Sérfræðingar telja þó ólíklegt að lokunin muni hafa umfangsmikil áhrif á vöruflutninga á heimsvísu þar sem aðrar hafnir á svæðinu geti fyllt í skarðið, ef svo má segja. Ekki liggur fyrir af hverju skipið missti afl AP fréttaveitan segir að vél skipsins hafi fengið hefðbundið viðhald við bryggju. Þá var skipið skoðað af sérfræðingum Strandgæslu Bandaríkjanna í september og leiddi sú skoðun ekkert í ljós.
Brú hrynur í Baltimore Bandaríkin Tengdar fréttir Þeir sem fóru í ána taldir látnir Lögregluyfirvöld í Maryland í Bandaríkjunum segja einstaklingana sex sem leitað var í gær eftir að Francis Scott Key brúin í Baltimore hrundi í gær séu nú taldir látnir. 27. mars 2024 06:50 Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Gámaflutningaskipið Dali, sem rak á Francis Scott Key brúna í Baltimore í Bandaríkjunum í nótt, varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á einum brúarstólpanna. Ríkisstjóri Maryland segir að neyðarkall hafi verið sent út frá skipinu í aðdragandanum, sem hafi bjargað lífum. 26. mars 2024 16:13 Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Tveimur hefur verið bjargað úr Patapsco-ánni í Baltimore í Bandaríkjunum eftir að brú yfir hana hrundi í nótt. Talið er að minnst sjö bifreiðar hafi hafnað í ánni en óvíst er hversu margir voru í bílunum. 26. mars 2024 13:17 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Sjá meira
Þeir sem fóru í ána taldir látnir Lögregluyfirvöld í Maryland í Bandaríkjunum segja einstaklingana sex sem leitað var í gær eftir að Francis Scott Key brúin í Baltimore hrundi í gær séu nú taldir látnir. 27. mars 2024 06:50
Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Gámaflutningaskipið Dali, sem rak á Francis Scott Key brúna í Baltimore í Bandaríkjunum í nótt, varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á einum brúarstólpanna. Ríkisstjóri Maryland segir að neyðarkall hafi verið sent út frá skipinu í aðdragandanum, sem hafi bjargað lífum. 26. mars 2024 16:13
Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Tveimur hefur verið bjargað úr Patapsco-ánni í Baltimore í Bandaríkjunum eftir að brú yfir hana hrundi í nótt. Talið er að minnst sjö bifreiðar hafi hafnað í ánni en óvíst er hversu margir voru í bílunum. 26. mars 2024 13:17