Dómar fyrir að smygla inn kókaínfylltri jólastyttu mildaðir Árni Sæberg skrifar 17. mars 2023 22:55 Lögregla kom hlustunar- og staðsetningarbúnaði fyrir í póstsendingunni og gerviefnum var komið fyrir í stað fíkniefnanna áður en mennirnir sóttu hana. Vísir/Vilhelm Landsréttur dæmdi tvo karlmenn í tíu og tólf mánaða fangelsi fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnainnflutnings, með því að hafa sótt jólastyttu fulla af kókaíni á pósthús, í dag. Mennirnir höfðu áður verið dæmdir í átján og 21 mánaðar fangelsi.
Mennirnir voru sakfelldir fyrir að hafa reynt að sækja styttuna, sem borist hafði frá Þýskalandi, í desember árið 2021. Tollgæslan hafði fyrir það haft samband við lögreglu vegna þess að um eitt kíló af kókaíni hafði fundist í styttunni. Lögregla kom þá hlustunar- og staðsetningarbúnaði fyrir í póstsendingunni og gerviefnum var komið fyrir í stað fíkniefnanna. Mennirnir, sem eru albanskir ríkisborgarar, neituðu báðir sök í málinu og sagði annar þeirra einungis hafa verið að skutla félaga sínum á pósthúsið gegn gjaldi á meðan sá sem sótti pakkann sagðist hafa verið að sækja pakkann fyrir mann sem hafi ekki komist á pósthúsið og beðið hann um að gera það gegn 15 þúsund króna greiðslu. Í héraði taldi dómari skýringar mannanna afar langsóttar og ótrúverðugar, en hvorugur þeirra vildi kannast við að eiga síma sem fannst í fórum þeirra með símanúmeri sem skráð var fyrir póstsendingunni . Taldi dómari það hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærðu hafi gerst sekir um tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots líkt og lýst var í ákæru. Mennirnir voru dæmdir til átján mánaða fangelsisvistar annars vega og 21 mánaða fangelsisvistar hins vegar. Dómar mildaðir vegna lítils styrks efnanna Landsréttur staðfesti sakfellingu mannanna með vísan til forsendna héraðsdóms en mildaði fangelsisdómana verulega. Í niðurstöðukafla dómsins segir að um hafi verið að ræða mikið magn hættulegra fíkniefna en með hliðsjón af litlum styrkleika efnanna, sem var aðeins um sautján prósent, þyki refsing annars þeirra hæfilega ákveðin fangelsi í tíu mánuði og hins fangelsi í tólf mánuði. Þá voru mennirnir dæmdir til að greiða þóknun verjenda sinna fyrir Landsrétti, um eina milljón króna hvor. Áður höfðu þeir verið dæmdir til að greiða um 2,2 milljónir króna annars vegar og ríflega þrjár milljónir króna hins vegar í málskostnað fyrir héraði.
Dómsmál Fíkniefnabrot Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Sjá meira