Fyrsti sigur Íslands á Norður-Evrópumóti

Íslenski hópurinn fagnar sigrinum.
Íslenski hópurinn fagnar sigrinum. Ljósmynd/Blaksambandið.

Ísland sigraði á Norður-Evrópumóti U17 ára landsliða kvenna í blaki sem lauk í Ikast í Danmörku í gær. 

Ísland skellti Danmörku í úrslitaleiknum 3:0 en fyrr í mótinu hafði íslenska liðið tapað fyrir því danska. Ísland vann hrinurnar 25:20, 25:14 og 25:19. 

Er þetta í fyrsta skipti sem yngra landslið Íslands vinnur mótið. 

Drengjalandslið Íslands hafnaði í 4. sæti eftir 3:0 tap fyrir Færeyjum í leiknum um bronsið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert