Viðskipti innlent

Bein út­sending: Ný­sköpun í mann­virkja­iðnaði

Máni Snær Þorláksson skrifar
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og VERKÍS halda fund um nýsköpun í mannvirkjaiðnaði.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og VERKÍS halda fund um nýsköpun í mannvirkjaiðnaði. Vísir/Vilhelm

Fundur um nýsköpun í mannvirkjaiðnaði verður haldinn hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, í Borgartúni 21, milli 9 og 12:30 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér á Vísi. 

Lögð verður áhersla á nýsköpun í byggingarefnum hjá styrkhöfum mannvirkjarannsóknasjóðsins Asks á fyrri hluta fundarins. 

„Einn af áhersluflokkum Asks – mannvirkjarannsóknasjóðs er byggingarefni enda skiptir val á umhverfisvænum byggingarefnum sköpum í baráttunni við loftslagsáhrif byggingariðnaðarins,“ segir í tilkynningu vegna fundarins.

Þá mun Anna Kristín Karlsdóttir, arkitekt hjá Biobuilding, fjalla um fyrsta hampsteypuhúsið á Íslandi og framtíð iðnaðarhamps í mannvirkjagerð. Ólafur Wallevik, prófessor í Iðn og tæknifræðideild Háskólans í Reykavík, mun svo fjalla um rannsókn sína um hámörkun steinefna sem íblöndunraefni í vistvænni steypu. 

Eftir það tekur Eyþór Rafn Þórhallsson, dósent í Iðn og tæknifræðideild Háskólans í Reykavík, til máls og kynnir verkefni sitt um bláþráð, umhverfisvæna styrkingu í steinsteypu. Því næst mun Jón Guðmundsson, verkfræðingur hjá Verkfræðiþjónustunni ehf. / f.h. rannsóknarverkefnis við Háskólann í Reykavík, kynna umhverfisrannsókn á krosslímdum timbureiningum.

Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan.

Heilsutengdur húsnæðisvandi

Á síðari hluti fundarins verður fjallað um umhverfisvænar lausnir á heilsutengdum húsnæðisvanda. 

„Mygla í húsum hefur verið útbreytt vandamál með stórfelldu eigna og heilsutjóni og hollusta húsnæðis hefur ennfremur risastóra græna skírskotun, því niðurrif bygginga og stórtækar endurbætur sem slík vandamál skapa, gera slík hús ein þau óumhverfisvænastu sem hægt er að byggja. Varpað verður ljósi á áskoranir og lausnir á þessum vanda.“

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Veðurvaktinni ætlar að kynna rannsókn sína hjá Aski – mannvirkjarannsóknasjóði um rakaskemmdir og slagregn. Ágúst Pálsson, B.Sc. í vélaverkfræði / lagnahönnuður hjá Verkís heldur svo erindi undir heitinu Hrollkaldur sannleikur úr íslenskum veruleika (Kuldabrýr og loftræsing í eldra húsnæði) og í kjölfar þess taka Þórunn Lilja Vilbergsdóttir, lögfræðingur hjá HMS og Ágúst Pálsson samtal um regluverkið. 

Ragnar Ómarsson byggingafræðingur og Indriði Níelsson byggingaverkfræðingur hjá Verkís standa að erindinu Lausnir fyrir framtíðina og Páll Árnason, verkfræðingur hjá Tæknisetri kynnir svo þjónustu Tækniseturs og fjallar ennfremur um áskoranir opinberra byggingarannsókna.

Í lok fundar verður svo  boðið upp á létta hádegishressingu og samtal.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×