Fótbolti

Úrvalsdeildarlið vildu Björn en hann valdi Lilleström

Sindri Sverrisson skrifar
Björn Bergmann Sigurðarson er orðinn leikmaður Lilleström á nýjan leik.
Björn Bergmann Sigurðarson er orðinn leikmaður Lilleström á nýjan leik. mynd/lsk.no

Björn Bergmann Sigurðarson var 17 ára gamall þegar hann skrifaði fyrst undir samning við norska knattspyrnufélagið Lilleström. Nú snýr hann aftur til félagsins, 29 ára gamall.

Björn hefur skrifað undir samning við Lilleström sem gildir til loka þessa árs. Hann mun því leika með liðinu í næstefstu deild Noregs eftir að hafa spilað með því í úrvalsdeildinni árin 2009-2012, en Lilleström féll með óhemju naumum hætti niður um deild í fyrra.

Samkvæmt heimasíðu Lilleström var hópur félaga úr norsku úrvalsdeildinni og víðar í Evrópu á eftir Birni en hann vildi snúa aftur til félagsins sem hann þekkir svo vel. 

Björn hefur verið á mála hjá Rostov í Rússlandi frá árinu 2018, sama ári og hann lék með Íslandi á HM, en hann var að láni hjá APOEL í Kýpur framan af þessu ári. Hann hefur einnig leikið með Molde, FC Köbenhavn og Wolves á sínum ferli, eftir að hafa byrjað hjá ÍA.

„Það voru nokkuð mörg félög sem höfðu samband en ég var búinn að ákveða að koma hingað. Það skiptir ekki máli fyrir mig hvort það er í efstu eða næstefstu deild. Það sem skiptir máli fyrir mig er Lilleström. Hér vil ég vera,“ sagði Björn við heimasíðu Lilleström.

Björn verður því liðsfélagi annars Skagamanns, Arnórs Smárasonar: „Það verður mjög gaman. Ég þekki jú Arnór vel. Við ólumst upp á Akranesi og höfum spilað samna í landsliðinu. Ég er búinn að æfa með ÍA í tvær vikur núna og finnst ég vera í fínu formi. Vonand get ég hjálpað liðinu sem mest.“


Tengdar fréttir

Björn gæti farið í næstefstu deild Noregs

Björn Bergmann Sigurðarson, landsliðsmaður í fótbolta, gæti verið á leið aftur til Lilleström í Noregi þar sem hann lék við góðan orðstír á árunum 2009-2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×