Borgin afléttir ekki kvöð um litla grasflöt og berjarunna þrátt fyrir mótmæli Eiður Þór Árnason skrifar 8. apríl 2021 13:06 Guðmundur Heiðar Helgason telur ekki hentugt að skylda íbúa til að vera með fjögurra fermetra grasflöt innan skjólveggja. Vísir/vilhelm Reykjavíkurborg ætlar ekki að aflétta kvöð í skipulagi Vogabyggðar um græn svæði innan einkagarða íbúða. Málið varðar sérafnotareiti íbúa í hinu nýja hverfi en Vísir fjallaði í janúar um óánægju Guðmundar Heiðars Helgasonar sem fékk ekki leyfi til að stækka pallinn fyrir aftan íbúð sína.
Komst fjölskyldan að því eftir fasteignakaupin að samkvæmt skilmálum borgarinnar þyrfti að vera gras yfir helmingi hins tíu fermetra sérafnotareits og minnst einn berjarunni. Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar að ákvæði um gróðurþekju í einkagörðum í Vogabyggð séu ekki talin íþyngjandi og eru svæðin sögð hluti af heildarmynd hverfisins. Guðmundur segir niðurstöðu borgarinnar vera vonbrigði og það beri á óánægju hjá fleiri íbúum í hverfinu. „Ég er ósáttur við þessa forræðishyggju borgaryfirvalda vegna lítilla séreignareita íbúa. Ég er ósammála þeirri niðurstöðu að þetta sé ekki íþyngjandi. Það er ekki praktísk lausn að hafa fjögurra fermetra grasflöt sem mun líklegast ekki fá neitt sólarljós. Ég hef einnig efasemdir um að þetta hafi mikið að segja um heildarútlit hverfisins, þar sem gróðurþekjan verður ekki sýnileg öðrum en mér.“ Sagt í mótsögn við markmið byggðarinnar ÞG íbúðir ehf., söluaðili íbúða á svæðinu, óskaði eftir því að borgin myndi fella niður áðurnefnt ákvæði um 50% gróðurþekju innan einkagarða og berjarunna á svokölluðu svæði tvö í Vogabyggð. Borgin hafnar beiðninni á grundvelli þess að slíkt „hefði verið í mótsögn við markmið byggðarinnar.“ Þá segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar að græn svæði einkagarða í borginni séu mikilvægur þáttur af grænni ásýnd hennar og gefi henni „skemmtilegt yfirbragð.“ „Í umsögn skipulagsfulltrúa segir að eitt af markmiðum í skipulagi Vogabyggðar sé að skapa jákvæðar forsendur fyrir áhugaverða og vistvæna byggð. Brýnt var fyrir hönnuðum, lóðarhöfum og öðrum að kynna sér vel alla skilmála sem gilda fyrir hönnun bygginga og útirýma á viðkomandi lóð auk þess að átta sig á samhengi byggðarinnar í tengslum við framtíðarþróun nánasta umhverfis.“ Umræddir sérskilmálar séu hluti af heildarhugsun hverfisins og útfærslan hluti af heildarmynd þess frá upphafi.
Reykjavík Húsnæðismál Borgarstjórn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Fleiri fréttir Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Sjá meira