Segir hund nágrannans hafa ráðist á litla stelpu: „Maður bara fékk sjokk“ Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 26. september 2022 21:11 Halldóra segir hundinn líkjast þýskum fjárhundi. Vísir/Vilhelm/Getty Íbúi á Akureyri segist ráðalaus vegna hunds sem börnum stafi ógn af. Hundurinn hafi glefsað í litla stelpu fyrr í dag, og kallað hafi verið á lögreglu. Hún segir hundinn sitja bundinn úti í garði heilu og hálfu dagana og gelta stanslaust. Íbúinn vill hundinn burt.
Halldóra Kr. Larsen, íbúi í Keilusíðu á Akureyri, segir í samtali við fréttastofu að ástandið sé óboðlegt. Árás á lítið barn hafi verið dropinn sem fyllti mælinn. Hún segir að margoft hafi verið kvartað til Matvælastofnunar og Akureyrarbæjar en ekkert hafi verið gert. „Hann hefur verið að gera okkur lífið mjög leitt. Svo best sem ég veit hefur þetta ekki orðið svona slæmt áður - að hann hafi ráðist að börnum - en hann er mjög árásargjarn á aðra hunda og geltir hérna daginn út og daginn inn. Eigandinn hefur hann bundinn hérna úti í garði heilu og hálfu dagana og er ekki að sinna honum almennilega – og bara vanrækir hann,“ segir Halldóra. Krakkarnir dauðhræddir Halldóra segir að unga stelpan hafi blessunarlega ekki meiðst alvarlega. Hún hafi ekki verið bitin til blóðs en hlotið bólgu og roða. Halldóra gagnrýnir aðgerðarleysi yfirvalda en lögregla tók skýrslu af stelpunni sem bitið var í og vitnum eftir atvikið í dag. Hún segir krakkana í nágrenninu dauðhrædda og bætir við að hundurinn sé einfaldlega ekki hæfur til að vera í fjölbýlishúsi. „Maður bara fékk sjokk þegar maður heyrði þvílíkt árásargjarnt gelt hérna úti og öskur; það rann vatn milli skinns og hörunds hjá manni - öskurinn og gráturinn í börnunum. Þau voru skíthrædd. Þetta voru fjórar litlar stelpur sem voru að labba hérna með lítinn hund og þessi hundur er svona svipaður og schaefer á stærð, kannski aðeins minni. Og hann kemur og ræðst á hinn hundinn og nær að glefsa í eitt barnið,“ segir Halldóra Alfarið eigandanum að kenna Halldóra segir að sonur eiganda hundsins hafi verið úti að labba með hann þegar hann náði að slíta sig lausan. Sonurinn hafi ekkert ráðið við hundinn. „Við viljum hundinn eiginlega bara í burtu . Við erum alveg á því að það eru ekki til slæmir hundar. Það eru til slæmir eigendur. Hundarnir, ef maður elur þá ekki upp og þeir eru vanræktir svona, auðvitað verða þeir snargeðveikir og árásargjarnir. Það þarf að ala þá rétt upp til að þeir séu húsum hæfir og hæfir til að vera í kringum börn og aðra hunda. Það er ekki við hundinn að sakast að hann sé vanræktur á þennan hátt, það er alfarið eigandanum að kenna að hún sé að vanrækja hann svona,“ segir Halldóra.
Hundar Dýr Akureyri Gæludýr Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Sjá meira