Ófaglegar ráðningar, frændhygli og spilling ríki innan lögreglunnar Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. maí 2023 20:47 Nanna Lind Stefánsdóttir, lögregluþjónn, segir ófaglegar ráðningar, frændhygli og spillingu ríkja innan lögreglunnar. Bylgjan Lögregluþjónn segir slælega stjórnunarhætti og spillingu vera stóra áhrifaþætti í miklu brottfalli hjá lögreglumönnum undanfarin fimmtán ár. Fjölgun lögreglunema sé ekki svarið heldur sé breytinga þörf í stjórnunarháttum og skipulagi lögreglunnar.
Nanna Lind Stefánsdóttir, lögregluþjónn, skrifaði meistararitgerðina „Það hefur enginn verið rekinn fyrir að gera ekki neitt“ í stjórnun og stefnumótun við Háskóla Ísland um brotthvarf menntaðra lögreglumanna úr starfi á árunum 2007 til 2022. Hún kom í viðtal í Reykjavík síðdegis til að ræða ritgerðina og brottfallsvandann sem blasir við lögreglunni. Sjálf segist hún hafa horft á eftir of mörgum góðum samstarfsfélögum hverfa úr starfi og hafi þess vegna ráðist í skrifin. Fjöldi lögreglumanna hefur að sögn Nönnu nánast staðið í stað undanfarin fimmtán, þrátt fyrir mikla fólksfjölgun Íslendinga og mikla fjölgun ferðamanna. Af þessum ástæðum var í fyrra ákveðið að tvöfalda inntöku lögreglunema í lögreglunám. Nanna segir það aðeins vera plástur á núverandi ástand en dugi skammt ef lögreglan heldur áfram að missa menntaða lögreglumenn í önnur störf. „Ef fatan lekur þá þarf að gera eitthvað til að stöðva lekann. Það gengur ekki einvörðungu að skrúfa bara frá,“ segir hún. Ævistarfið entist stutt Við rannsóknina fékk Nanna til sín sextán viðmælendur sem áttu það sameiginlegt að vera fyrrum lögreglumenn sem hefðu horfið á braut á undanförnum fimmtán árum. Þeir komu úr öllum landshornum og höfðu flestir starfað hjá fleiri en einu embætti. Nanna segir það hafa sérstaklega vakið athygli sína að flest allir viðmælendurnir hafi lýst því að í upphafi starfsferilsins hafi þeir litið á lögreglustarfið sem sitt ævistarf og höfðu mikla ánægju af því. Síðan hafi hins vegar farið að halla undan fæti. Hún segir að þrátt fyrir ólíkar upplifanir og reynslu viðmælenda hafi verið sex megin áhrifaþættir fyrir brotthvarfi. Þeir hafi verið stjórnunarhættir, starfsánægja, starfsumhverfi, samspili vinnu og einkalífs, kjör og álag og streita. Ófaglegar ráðningar og spilling ríkjandi Aðspurð út í stjórnunarhættina segir Nanna viðmælendur hafa lýst því yfir að stjórnunarhættir hafi vegið þyngst við brotthvarfið. Þar lýstu viðmælendur „ófaglegum stjórnunarháttum, miklum samskiptaerfiðleikum, sérstaklega við yfirmenn, ríkjandi óréttlæti, ófaglegum ráðningum og takmörkunum á tækifærum til þróunar í starfi,“ að sögn Nönnu. Nanna segir viðmælendur hafa lýst því að við ófaglegar ráðningar væri frændhygli of algeng. Einnig væru dæmi þess að menn væru settir í stöðu til eins árs og að ári liðnu væri auglýsing sniðin eftir þeirri reynslu og eiginleikum sem viðkomandi fékk yfir árið. Aðspurð út í spillingu innan lögreglunnar segir Nanna að hún sé því miður til staðar. Hún sé ekki ný af nálinni og það sé breytinga þörf. Lögreglumenn hvattir til iðjuleysis „Það hefur enginn verið rekinn fyrir að gera ekki neitt“ er setning sem Nanna segir að allt of margir lögreglumenn hafi heyrt sjálfir eða heyrt einhvern segja. Hún hafi sjálf fengið að heyra þetta á sínu fyrsta sumri í lögreglunni til að draga niður frumkvæðiskraft hennar. „Þú verður bara að átta þig á að það hefur enginn verið rekinn fyrir að gera ekki neitt og við fáum jafn mikið borgað, hvort sem við förum út eða erum hér inni,“ segir hún að hafi verið sagt við sig. Þessi hugsunarháttur sé hluti af þessum slælegu starfsháttum. Hún segir þörf á því að vandinn sé krufinn og lögreglan líti inn á við. Hún nefnir að lögregluþjónar sem hætti ættu að fara í starfslokaviðtöl og að það þurfi meiri mannauðsstjórnun innan lögreglunnar. Hún leggur einnig til að horft sé til Norðurlandanna þar sem eru ráðnir inn sérfræðingar sem eru ekki menntaðir sem lögreglumenn í rannsóknardeildir. Hún segir viðmælendur hafa bent á að „aukinn fjöldi lögreglumanna leysi ekki allan vanda“. Það þurfi líka að auka gæði og hæfni og efla þá einstaklinga sem eru starfandi nú þegar.
Lögreglan Reykjavík síðdegis Háskólar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Erlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Fleiri fréttir Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Sjá meira