Samningar undirritaðir um breikkun í Lækjarbotnum Kristján Már Unnarsson skrifar 29. nóvember 2021 17:34 Svona á Lækjarbotnabrekkan að líta út næsta haust, gangi áformin eftir. Vegagerðin Samningar um tvöföldun Suðurlandsvegar á þriggja kílómetra kafla um Lögbergsbrekku í útjaðri Reykjavíkur voru undirritaðir hjá Vegagerðinni í dag. Verkinu seinkar um fjóra mánuði þar sem lengri tíma tók að fá framkvæmdaleyfi en búist var við.
Vegagerðin gekk til samninga við læstbjóðendur, Jarðval sf. og Bjössa ehf., í Kópavogi. Tilboð þeirra hljóðaði upp á 791 milljón króna, sem var 84,5 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Árni Snær Kristjánsson, frá Bjössa ehf., Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri og Árni Geir Eyþórsson, frá Jarðvali sf., að lokinni undirskrift síðdegis.Vegagerðin/G. Pétur Matthíasson Tilboðin voru opnuð þann 13. júlí í sumar. Miðað við það hefðu verksamningar átt að geta verið klárir í ágústmánuði og verkið að geta hafist fyrir haustið. Vegagerðin skammtaði enda nauman verktíma og átti verkinu að vera að fullu lokið 31. mars 2022. „Verklok áttu að vera í mars en færast aftur til júlí,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, og segir skýringuna á seinkuninni þá að lengri tíma hafi tekið að fá framkvæmdaleyfi en Vegagerðin áætlaði. Það lúti mest að skipulagsmálum. Vegurinn verður breikkaður milli Fossvalla og Gunnarhólma.Vegagerðin Suðurlandsvegur næst Reykjavík er einn fjölfarnasti þjóðvegur landsins og aðeins með eina akrein í hvora átt á tíu kílómetra löngum kafla milli Rauðavatns og Fossvalla, ef frá er talin klifurrein í Lögbergsbrekku. Þá eru akreinar á þessum kafla ekki aðskildar með vegriði né umferðareyju. „Vinna á verkstað ætti að fara fljótlega af stað, mér skilst að það séu jafnvel komin tæki á staðinn,“ segir G. Pétur. Frétt Stöðvar 2 í sumar um verkið má sjá hér:
Vegagerð Samgöngur Umferðaröryggi Kópavogur Tengdar fréttir Verktakar börðust hart um að fá að breikka Lögbergsbrekku Vegagerðinni bárust fjögur tilboð í tvöföldun Suðurlandsvegar á 3,3 kílómetra kafla um Lögbergsbrekku í útjaðri Reykjavíkur en tilboð voru opnuð í dag. Þrjú þeirra reyndust undir 937 milljóna króna kostnaðaráætlun. Það lægsta kom frá Jarðvali sf. í Kópavogi, upp á 791 milljón króna, sem var 84,5 prósent af áætluðum verktakakostnaði. 13. júlí 2021 21:31 Ein fjölfarnasta brekka hringvegarins breikkuð Vegagerðin hefur boðið út tvöföldun Suðurlandsvegar á þriggja kílómetra kafla um Lögbergsbrekku í útjaðri Reykjavíkur. Verkinu á að vera að fullu lokið fyrir næsta vor. 28. júní 2021 22:22 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjónarúminu Atvinnulíf Stöð 2+ lækkar verð Neytendur Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Viðskipti innlent Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Viðskipti erlent Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Viðskipti Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Viðskipti innlent Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Viðskipti innlent Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Viðskipti innlent Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Fleiri fréttir Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Tekur við stöðu rekstrarstjóra Stöðvar 2 Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Spánski verður Daisy Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar Byggingaframkvæmdir óralangt frá settum markmiðum Taka við stjórnendastöðum hjá Advania Benedikt tekur við af Andrési hjá SVÞ Tveir stjórnarmenn og forstjóri lögðu til milljarð Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Viðræður vegna kaupa á Lyfju að hefjast Dómari þarf ekki að víkja vegna fjölskyldutengsla í máli feðga Sjá meira
Verktakar börðust hart um að fá að breikka Lögbergsbrekku Vegagerðinni bárust fjögur tilboð í tvöföldun Suðurlandsvegar á 3,3 kílómetra kafla um Lögbergsbrekku í útjaðri Reykjavíkur en tilboð voru opnuð í dag. Þrjú þeirra reyndust undir 937 milljóna króna kostnaðaráætlun. Það lægsta kom frá Jarðvali sf. í Kópavogi, upp á 791 milljón króna, sem var 84,5 prósent af áætluðum verktakakostnaði. 13. júlí 2021 21:31
Ein fjölfarnasta brekka hringvegarins breikkuð Vegagerðin hefur boðið út tvöföldun Suðurlandsvegar á þriggja kílómetra kafla um Lögbergsbrekku í útjaðri Reykjavíkur. Verkinu á að vera að fullu lokið fyrir næsta vor. 28. júní 2021 22:22