Tyrkir sagðir ætla að samþykkja umsókn Finna Samúel Karl Ólason skrifar 15. mars 2023 16:48 Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, mun taka á móti forseta Finnlands á morgun og er talið að hann muni tilkynna honum að umsókn Finna um inngöngu í NATO verði samþykkt. AP/Burhan Ozbilici Útlit er fyrir að yfirvöld í Tyrklandi ætli að samþykkja aðildarumsókn Finna í Atlantshafsbandalagið á næstu vikum en forseti Finnlands mun fara til Tyrklands á morgun. Tyrkir ætla þó ekki að samþykkja umsókn Svía að svo stöddu.
Finnar og Svíar sóttu saman um aðild að Atlantshafsbandalaginu í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og hafa viljað fá inngöngu saman. Það hefur þó gengið erfiðlega og þá að miklu leyti vegna mótmæla yfirvalda í Tyrklandi gegn inngöngu Svía en Tyrkir saka Svía meðal annars um að hýsa hryðjuverkamenn. Tyrkir hafa krafist þess að fá sænska Kúrda framselda til Tyrklands og aðila sem þeir segja tengjast valdaránstilraun árið 2016. Bæði Finnar og Svíar hafa að einhverju leyti komið til móts við Tyrki og meðal annars aflétt vopnasölubanni sem sett var á Tyrki eftir innrás þeirra í Sýrland árið 2019. Heimildarmenn Reuters fréttaveitunnar í Tyrklandi segja að ákvörðun hafi verið tekin um að fjalla um umsóknir Finna og Svía í sitthvoru lagi. Að umsókn Finna gæti verið samþykkt fyrir kosningarnar í Tyrklandi í maí. Eins og fram kemur í frétt YLE, finnska ríkisútvarpsins, mun Sauli Niinistö, forseti Finnlands, ferðast til Tyrklands á morgun og hitta þar Erdogan. Niinistö á von á því að honum verði tilkynnt að umsókn Finna verði samþykkt en heimildarmenn YLE segja að forsetinn muni samþykkja lagafrumvarp um aðild Finnlands að NATO í næstu viku. Yfirvöld í Ungverjalandi eiga einnig eftir að samþykkja umsóknirnar, eða hafna þeim, en öll önnur aðildarríki NATO hafa samþykkt þær. Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði í gær að líkurnar á því að Finnland muni ganga í NATO á undan Svíþjóð hafi aukist. Það er eftir að erindrekar Finnlands og Svíþjóðar ræddu við erindreka Tyrklands í Brussel fyrr í vikunni.
Finnland Tyrkland Svíþjóð NATO Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Finnar byrja að girða sig af frá Rússlandi Framkvæmdir við girðingu á hluta landamæra Finnlands og Rússlands eru hafnar. Finnska landamærastofnunin segir að girðingin verði þriggja metra há með gaddavír ofan á henni. Tilgangurinn sé að tryggja landamærin frekar. 1. mars 2023 10:14 Vilja aftur funda með Svíum um NATO-aðild Tyrknesk stjórnvöld hafa tilkynnt að til standi að halda fleiri fundi með fulltrúum sænskra og finnskra stjórnvalda um NATO-aðild þeirra. Mevlüt Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi frá þessu í morgun. 20. febrúar 2023 10:12 Finnland og Svíþjóð ætli hönd í hönd í NATO Finnland og Svíþjóð stefna enn að því að ganga í Atlantshafsbandalagið, NATO, á sama tíma, þrátt fyrir andstöðu Tyrkja við aðild Svía að bandalaginu. Þetta ítrekuðu forsætisráðherrar ríkjanna tveggja á blaðamannafundi í Stokkhólmi í dag. 2. febrúar 2023 19:40 Segir Tyrki mögulega munu hleypa Finnum inn án Svía Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir Tyrki mögulega munu leggja blessun sína yfir aðildarumsókn Finna að Atlantshafsbandalaginu án þess að samþykkja að hleypa Svíum inn á sama tíma. 30. janúar 2023 08:14 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Innlent Fleiri fréttir Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Sjá meira
Finnar byrja að girða sig af frá Rússlandi Framkvæmdir við girðingu á hluta landamæra Finnlands og Rússlands eru hafnar. Finnska landamærastofnunin segir að girðingin verði þriggja metra há með gaddavír ofan á henni. Tilgangurinn sé að tryggja landamærin frekar. 1. mars 2023 10:14
Vilja aftur funda með Svíum um NATO-aðild Tyrknesk stjórnvöld hafa tilkynnt að til standi að halda fleiri fundi með fulltrúum sænskra og finnskra stjórnvalda um NATO-aðild þeirra. Mevlüt Cavusoglu, utanríkisráðherra Tyrklands, greindi frá þessu í morgun. 20. febrúar 2023 10:12
Finnland og Svíþjóð ætli hönd í hönd í NATO Finnland og Svíþjóð stefna enn að því að ganga í Atlantshafsbandalagið, NATO, á sama tíma, þrátt fyrir andstöðu Tyrkja við aðild Svía að bandalaginu. Þetta ítrekuðu forsætisráðherrar ríkjanna tveggja á blaðamannafundi í Stokkhólmi í dag. 2. febrúar 2023 19:40
Segir Tyrki mögulega munu hleypa Finnum inn án Svía Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir Tyrki mögulega munu leggja blessun sína yfir aðildarumsókn Finna að Atlantshafsbandalaginu án þess að samþykkja að hleypa Svíum inn á sama tíma. 30. janúar 2023 08:14