Íbúar í nærliggjandi götum þustu út til aðstoða Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. september 2022 18:02 Björn Ingi Óskarsson mundar sópinn ásamt nágranna sínum. Þeir búa í nærliggjandi götum en létu sitt ekki eftir liggja til að aðstoða. Vísir/Tryggvi Menn stóðu í ströngu á Oddeyrinni á Akureyri í dag vegna gríðarlegs vatnsflaums sem þar hafði flætt um götur og inn í hús á neðsta hluta Eyrinnar. Íbúar í nærliggjandi götum voru mættir á vettvang til að leggja opinberum starfsmönnum lið í baráttunni.
Eins og komið hefur fram á Vísi í dag var allt á floti á Akureyri. Samblanda af hárri sjávarstöðu og gríðarlega kröftugri norðanátt gerði það að verkum að sjór gekk á land á neðsta hluta Oddeyrinnar, sem aðallega hýsir létta iðnaðarstarfsemi. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi var allt meira og minna á floti, með tilheyrandi tjóni. Þegar fréttamaður mætti á svæðið í dag tók hann eftir því að þar voru lögregla, slökkviliðsmenn, björgunarsveitarmenn og gulklæddir starfsmenn bæjarins og Norðurorku að störfum við að koma vatninu í burtu. Þar var voru hins vegar einnig ómerktir einstaklingar á fullu við að opna niðurföll og koma flaumnum frá. Þetta voru íbúar í nærliggjandi götum, sem höfðu sloppið við vatnsflauminn, en rann blóðið til skyldunnar að aðstoða við vinnuna. „Ég hljóp bara út með kústinn þegar ég sá að þetta var komið í götuna og ætlaði bara að reyna að tefja fyrir þessu,“ sagði Björn Ingi Óskarsson, íbúi á Eyrinni í samtali við fréttastofu á vettvangi í dag. Hann var einn af þeim sem var mættur til að aðstoða. Það var allt á floti.Vísir/Tryggvi „Maður reynir bara að stoppa þetta ef maður getur eða að minnsta kosti að reyna að tefja fyrir því,“ sagði hann en nokkrir aðrir íbúar í grennd voru með Birni með sópa og járnkarla á lofti. Hvað sjáið þið fram á að vera hérna lengi? „Ég held að það sé ekkert verið að pæla í því. Bara að reyna að opna þetta, reyna að koma þessu vatni í burtu.“ Lögreglan á Akureyri segir ljóst að tjón hafi orðið í morgun. Þá stendur einnig til að standa vaktina í kvöld þar sem aftur er von á háflóði á milli 21-22. Þá vona menn hins vegar að aðgerðir sem ráðist var í dag, meðal annars með því að setja sandpoka fyrir innganga í hús á svæðinu, geti skilað árangri. Lögregla stendur hins vegar vaktina og biður þá sem eiga húseignir á svæðinu að gera ráðstafanir til að forða frekara tjóni.
Akureyri Veður Óveður 25. september 2022 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Innlent Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Erlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent Fleiri fréttir Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Sjá meira