Dagurinn snúist um að njóta með fjölskyldunni og vera þakklátur Fanndís Birna Logadóttir skrifar 25. nóvember 2021 23:00 Justin og Guðrún ásamt foreldrum þeirra beggja og tveimur dætrum. Vísir/Egill Þakkargjörðarhátíðin var haldin hátíðleg í dag og á morgun taka verslanir víða um land þátt í afsláttargleðinni sem fylgir Svörtum föstudegi. Um er að ræða einn stærsta verslunardag ársins og nýtur hann sífellt meiri vinsælda hér á landi.
Svartur föstudagur fer fram á morgun og taka verslanir víða um land þátt í afsláttargleðinni. Um er að ræða einn stærsta verslunardag ársins og nýtur hann sífellt meiri vinsælda hér á landi. Dagurinn fer fram ár degi eftir þakkargjörðarhátíðina sem haldin er hátíðleg í Bandaríkjunum fjórða fimmtudag nóvembermánaðar ár hvert. Bandaríska verslunarhefðin hefur á undanförnum árum verið tekin upp í ýmsum löndum, þar á meðal á Íslandi. Þó nokkrar verslanir hafa tekið forskot á sæluna og byrjað að bjóða upp á tilboð fyrr í vikunni og halda jafnvel áfram fram yfir helgina. Hver verslunin á fætur annarri keppist nú við að laða fólk til sín og því hafa viðskiptavinir úr nægu að velja. Þrátt fyrir að Svartur föstudagur, og Stafrænn mánudagur sem fylgir eftir helgina, sé áberandi hér á landi virðast Íslendingar halda minna upp á Þakkargjörðarhátíðina sjálfa, sem tengist verslunardeginum órjúfanlegum böndum. Með árunum virðast þó fleiri vera meðvitaðir um hátíðina og er boðið upp á hátíðarkalkún víða í tilefni dagsins. Þá halda einhverjar fjölskyldur boð þar sem alls kyns kræsingar eru á boðstólum og er þar haldið meira í hefðirnar. Fara hringinn og segja hvað þau eru þakklát fyrir Justin Shouse og Guðrún Edda Sveinbjörnsdóttir eru meðal þeirra sem halda daginn hátíðlegan ár hvert en Justin er sjálfur frá Bandaríkjunum og þekkir því vel til hefðarinnar. Foreldrar hans náðu að fagna hátíðinni með fjölskyldunni en að sögn Justins er móðir hans aðalkokkurinn. Fjölskyldan tjaldaði öllu til í tilefni dagsins. Vísir/Egill „Við erum með kalkún, skinku, gular baunir og ostakartöflur, sem eru mjög mikilvægar fyrir okkar fjölskyldu, sæt kartöflumús, og mikil sósa, alltaf mikil sósa,“ segja Justin og Guðrún um hátíðarmatseðilinn þetta árið en þar að auki var að finna svokölluð djöflaegg, trönuberjasultu og eplasósu á boðstólum. Justin hefur ávalt haldið upp á Þakkargjörðina og gerir það yfirleitt með foreldrum sínum en þau náðu því ekki í fyrra og því tvöföld hátíð hjá þeim þetta árið. Íslendingar þekkja eflaust til Þakkargjörðarhátíðarinnar úr bíómyndum en þar má oftast sjá fólk fara hringinn áður en borðhald hefst til að fara yfir það sem hver og einn er þakklátur fyrir auk þess sem farið er með bæn. Að sögn Justins náðu kvikmyndirnar því rétt og er það einmitt þannig sem máltíðin hefst hjá fjölskyldunni. „Hjá okkur snýst þetta um fjölskyldu og góðan mat, vinir að koma saman og borða saman, bara að njóta dagsins, hafa gaman, og vera þakklátur. Það er bara mjög gaman að fagna því,“ segir Justin.
Matur Bandaríkin Verslun Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Fleiri fréttir Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Sjá meira