Þrjú fórnarlambanna í Perm voru innan við tvítugt Kjartan Kjartansson skrifar 21. september 2021 14:22 Tvær stúlkur hugga hvor aðra fyrir utan ríkisháskólann í Perm. Fimm nemendur og einn kennari var skotinn til bana í árásinni þar í gærmorgun. AP/Dmitrí Lovetskí Íbúar í borginni Perm í Rússlandi eru í áfalli eftir að nemandi við ríkisháskólann þar skaut sex manns til bana í gær. Þrjú þeirra látnu voru innan við tvítug að aldri.
Vitni lýsa því að morðinginn, sem er átján ára gamall piltur, hafi hafið skothríð á skólalóðinni en síðan fært sig inn í skólabyggingarnar. Um þrjú þúsund nemendur og kennarar voru í skólanum þegar fjöldamorðið var framið. Nemendur og kennarar birgðu fyrir dyr að skólastofum og sumir stukku út um glugga á annarri hæð til þess að komast undan byssumanninum. Aðrir földu sig á gólfinu og undir skrifborðum. Margir voru minnugir skotárásar sem framin var í skóla í Kazan fyrr á þessu ári og vissu því hvernig ætti að bregðast við. Þrátt fyrir það náði byssumaðurinn að skjóta sex manns til bana og særa mun fleiri. Sjö nemendur sem særðust voru fluttir með sjúkraflugi á sjúkrahús í Moskvu í dag, að sögn AP-fréttastofunnar. Perm er um 1.300 kílómetra austur af höfuðborginni. Flest fórnarlömbin voru nemendur við skólann. Þau Ksenia Samtsjenkó, Jekaterína Shakirova og Jaroslav Aramelev voru átján til nítján ára gömul. Alexandra Mokhova var tvítug en Anna Aigeldina 26 ára. Elsta fórnarlambið var Margarita Engaus en hún var 66 ára gömul. Mynd af einu fórnarlamba árásarinnar við hlið ríkisháskólans í Perm. Margir hafa lagt blóm og kerti til minningar um fórnarlömbin í dag.AP/Dmitrí Lovetskí Lögreglumenn hylltir sem hetjur Fólk hefur lagt blóm og kveikt á kertum við hlið háskólans sem voru lokuð og læst í dag. Nemendur sem fréttaritari breska ríkisútvarpsins BBC ræddi við segja að þeir séu þjakaðir af harmi. Flestir kusu þó frekar að bera harm sinn í hljóði en að ræða við fréttamann. Talið er að morðinginn hafi keypt haglabyssuna sem hann notaði við ódæðið með löglegum hætti í maí. Hann hafi jafnframt verið með leyfi fyrir vopninu sem gildir til 2026. Hann hafi fengið leyfið áður en reglur um skotvopnaeign voru hertar eftir skotárásin í Kazan. Svo virðist sem að byssumaðurinn hafi verið drifinn áfram af hatri á skólafélögum sínum. Hann birti myndband á samfélagsmiðlum fyrir skotárásina þar sem hann sagðist lengi hafa dreymt um að láta til skarar skríða. Tveir lögreglumenn hafa verið hylltir sem hetjur vegna viðbragða sinna við árásinni. Einn þeirra leiddi nemendur og kennara í öruggt skjól en annar mætti árásarmanninum og tókst að særa hann. „Ungi maðurinn féll niður. Ég hljóp að honum, hélt honum föstum, ýtti burt rifflinum, skothylkjum og hnífi og byrjaði svo að veita honum fyrstu hjálp,“ sagði Konstantín Kalinin, liðsforingi, í myndbandi sem innanríkisráðuneyti Rússlands birti. Árásarmaðurinn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.
Rússland Tengdar fréttir Sex nú sagðir látnir í skotárásinni í Rússlandi Háskólanemi sem hóf skothríð á skólafélaga sína í borginni Perm í Rússlandi í morgun drap að minnsta kosti sex manns og særði fjöldi annarra. Hann særðist sjálfur þegar hann streittist gegn handtöku og liggur á sjúkrahúsi. 20. september 2021 13:02 Átta féllu í skotárás í rússneskum háskóla Byssumaður skaut átta til bana og særði marga til viðbótar í háskóla í rússnesku borginni Perm í morgun. Að sögn innanríkisráðuneytis landsins er árásarmaðurinn í haldi en talsmaður skólans segir að hann hafi verið felldur. 20. september 2021 08:56 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Lögregla með eftirför í Vogahverfi Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Fleiri fréttir Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Sjá meira
Sex nú sagðir látnir í skotárásinni í Rússlandi Háskólanemi sem hóf skothríð á skólafélaga sína í borginni Perm í Rússlandi í morgun drap að minnsta kosti sex manns og særði fjöldi annarra. Hann særðist sjálfur þegar hann streittist gegn handtöku og liggur á sjúkrahúsi. 20. september 2021 13:02
Átta féllu í skotárás í rússneskum háskóla Byssumaður skaut átta til bana og særði marga til viðbótar í háskóla í rússnesku borginni Perm í morgun. Að sögn innanríkisráðuneytis landsins er árásarmaðurinn í haldi en talsmaður skólans segir að hann hafi verið felldur. 20. september 2021 08:56