Gera ráð fyrir að aðstoða tvö þúsund heimili fyrir jólin: „Þetta er þungur róður fyrir marga“ Fanndís Birna Logadóttir skrifar 6. desember 2022 17:00 Fleiri virðast eiga erfitt fyrir þessi jól en árið áður, ef marka má umsóknir til Mæðrastyrksnefndar. Vísir/Vilhelm Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur gerir ráð fyrir að tvö þúsund heimili leiti til þeirra fyrir jólin en um er að ræða ívið meiri fjölda en á fyrri árum. Ljóst sé að staðan í samfélaginu reynist mörgum erfið og er róðurinn þungur víða.
Nína Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, segir aðsóknina fyrir þessi jól ívið meiri en á fyrri árum. Verðbólgan og staðan almennt í efnahagsmálum spili þar greinilega inn í meðal annars. „Við finnum alveg mikinn mun, það mun vera aukning á fólki sem að kemur til okkar núna fyrir jólin heldur en var í fyrra,“ segir Nína. Gert er ráð fyrir að tvö þúsund heimili, þá bæði einstaklingar og fjölskyldur, leiti til þeirra í ár. Til samanburðar var fjöldinn um sextán hundruð í fyrra, þó umsóknirnar hafi þá vissulega verið eilítið færri en á fyrri árum. Aðspurð um hvort þau ráði við aukinn fjölda segir Nína þau reyna að hjálpa öllum. „Við erum bara að vinna út úr þessum umsóknum sem við höfum og þetta mun taka smá tíma að vinna okkur í gegnum þetta. Auðvitað viljum við reyna að hjálpa öllum og við eigum góða bakhjarla að sem að hjálpa okkur en þetta er samt alltaf mjög dýrt og mikið umstang,“ segir hún. „Við erum bara núna þessa dagana að taka á móti vörum og gjöfum og alls konar, af því að við erum náttúrulega líka að gefa jólagjafir, og maður finnur það bara að það er hart í ár hjá fólki,“ segir hún enn fremur. Allir boðnir og búnir til að hjálpa Í ár er í fyrsta sinn tekið á móti umsóknum á netinu en þó umsóknarfresturinn sé liðinn eru þau enn að taka á móti umsóknum, meðal annars símleiðis, enda eflaust einhverjir sem kunna ekki nægilega vel á netið. „Við segjum ekki nei við fólk, við hjálpum þó að umsóknarfrestur sé liðinn. Það er ekki nema þú búir kannski í öðru póstfélagi eða eigir lögheimili annars staðar og þá aðstoðum við bara fólk við að finna úr því,“ segir Nína. Hægt er að styrkja Mæðrastyrksnefnd í gegnum maedur.is og maedrastyrkur.is en á síðarnefndu síðunni er framlagið í formi poka með matvörum og nauðsynjum. Hægt er að styrkja Mæðrastyrksnefnd allt árið og á það ekki síður við um fyrir jólin en Nína segir að allir, bæði fyrirtæki og almenningur, séu boðnir og búnir til að hjálpa. „Við erum náttúrulega starfandi allt árið og fyrir utan jólin þá erum við að gefa föt og annað þannig. Þetta er það mikilvægt málefni og eins og ég segi, út frá öðrum mæðrastyrksnefndum um land allt og hjálparstofnunum þá veit ég bara að þetta er þungur róður fyrir marga,“ segir Nína. Hægt er að leggja Mæðrastyrksnefnd lið í gegnum heimasíðuna maedur.is eða með því að leggja inn á reikning samtakanna: rn. 0101-26-35021 og kt. 470269-1119. Þá er hægt að gefa poka með matvöru og nauðsynjum í gegnum vefsíðuna maedrastyrkur.is.
Hjálparstarf Jól Efnahagsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira