Namibískir fjölmiðlamenn senda frá sér harðorða yfirlýsingu Jakob Bjarnar skrifar 3. maí 2021 10:42 Í yfirlýsingu NAMPU er því haldið fram að Helgi Seljan megi sæta ofsóknum af hálfu Samherja. Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja en í yfirlýsingunni er sérstaklega bent á að Helgi Seljan og Aðalsteinn Kjartansson hafi afhjúpað hneykslismál í lok árs 2019. Í tilkynningu frá samtökum blaðamanna í Namibíu (NAMPU) er harmað að Ísland sé nú óðum að stefna inn á lista yfir lönd hvar blaðamönnum er ekki óhætt að sinna starfi sínu.
Yfirlýsingin er afar harðorð en hana má finna í heild sinni í tengdum skjölum neðst í fréttinni. Samtökin, sem á ensku bera titilinn „the Namibia Media Professionals Union (NAMPU), telja að rauð ljós ættu að blikka vegna viðbragða Samherja við fréttum um Samherjaskjölin (Fishrot), eitt helsta hneykslismál síðustu ára en í kjölfarið hafi íslenskir blaðamenn mátt þola yfirgang og ofsóknir í formi áróðursherferðar. Ráðist að blaðamönnum Þar segir að Samherji, sem nú stendur í miðju ásakana og dómsmála er varða víðtæka spillingu, hafi ráðist í herferð þar sem ráðist er að blaðamönnum með afvegaleiðandi upplýsingum og beinum ógnunum með það fyrir augum að þagga fréttaflutning af umsvifum fyrirtækisins í Namibíu. Tekið er fram að fyrirtækið hafi vitaskuld fullan rétt á að bregðast við ásökunum en það ætti ekki að reyna að koma í veg fyrir rannsókn málsins og að um það sé fjallað. Namibískir blaðamenn standi heilshugar með íslenskum kollegum sem hafa mátt sæta ofsóknum af hálfu Samherja vegna fregna af Samherjaskjölunum. Að auki er skorað á blaðamenn og stjórnvöld sem hafa með fjölmiðlafrelsi að gera á Íslandi að vinna að alefli að því að afhjúpa spillingu. Blaðamenn eigi að hafa fullan rétt á því að verja sig gegn árásum Samherja, á sínum eigin vettvangi á samfélagsmiðlum. En þar er vísað til siðanefndardóms yfir Helga Seljan. NAMPU skorar jafnframt á samtök blaðamanna um heim allan að lýsa yfir stuðningi við þá íslenska blaðamenn sem hafa mátt þola annað eins og þetta. Hneykslismál sem varða umfangsmikla mútustarfsemi Þá er þess getið sérstaklega, í lok yfirlýsingar, að Helgi Seljan og Aðalsteinn Kjartansson séu blaðamenn sem starfi fyrir íslenska ríkissjónvarpið og hafi í lok árs 2019 fjallað um Samherjaskjölin í fréttaþættinum Kveik, ásakanir um að Samherji hafi greitt milljónir dollara í mútur til þröngs hóps namibískra stjórnmála- og viðskiptamanna með það fyrir augum að komast yfir kvóta á hrossamakríl. Blaðamannafélag Íslands, undir formennsku nýs formanns, Sigríðar Daggar Auðunsdóttur, sendi í gær frá sér yfirlýsingu sem þessu tengist en þar er það átalið að Morgunblaðið birti auglýsingar frá Samherja; auglýsingar sem vísa á téða herferð sem beinist einkum gegn Helga Seljan. Í yfirlýsingu NAMPU er að endingu bent á að á lista Blaðamanna án landamæra þar sem fjölmiðlafrelsi er metið að Ísland sé átta sætum ofar á lista, í 16 sæti en Namibía er í því 24. Tengd skjöl Media_Release_-_Samherji's_attack_on_journalsitsPDF131KBSækja skjal
Samherjaskjölin Fjölmiðlar Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Fordæma að Samherji hafi fengið að birta umdeilda auglýsingu á mbl.is Stjórn Blaðamannafélags Íslands (BÍ) fordæmir að Árvakur, útgáfufélag mbl.is, hafi birt auglýsingu frá Samherja sem var hluti af herferð fyrirtækisins gegn fréttamanninum Helga Seljan. 2. maí 2021 19:00 Líkir árásum Samherja á Helga Seljan við ofbeldi Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri Ríkisútvarpsins (RÚV), líkir persónulegum árásum útgerðarrisans Samherja á Helga Seljan, fréttamann RÚV, við ofbeldi sem ekki verði við unað. Ekki sé hægt að slíta ummæli Helga á samfélagsmiðlum sem siðanefnd taldi óviðeigandi úr samhengi við aðför fyrirtækisins að honum. 31. mars 2021 18:11 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Búast má við slyddu Veður Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Sjá meira
Fordæma að Samherji hafi fengið að birta umdeilda auglýsingu á mbl.is Stjórn Blaðamannafélags Íslands (BÍ) fordæmir að Árvakur, útgáfufélag mbl.is, hafi birt auglýsingu frá Samherja sem var hluti af herferð fyrirtækisins gegn fréttamanninum Helga Seljan. 2. maí 2021 19:00
Líkir árásum Samherja á Helga Seljan við ofbeldi Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri Ríkisútvarpsins (RÚV), líkir persónulegum árásum útgerðarrisans Samherja á Helga Seljan, fréttamann RÚV, við ofbeldi sem ekki verði við unað. Ekki sé hægt að slíta ummæli Helga á samfélagsmiðlum sem siðanefnd taldi óviðeigandi úr samhengi við aðför fyrirtækisins að honum. 31. mars 2021 18:11