Dómarinn sem gerði allt vitlaust í Afríkukeppninni var settur í bann vegna gruns um spillingu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. janúar 2022 16:01 Janny Sikazwe var maður gærdagsins í Afríkukeppninni. getty/James Williamson Dómarinn sem flautaði leik Túnis og Malí í Afríkukeppninni tvisvar af áður en honum var lokið var settur í bann vegna gruns spillingu fyrir nokkrum árum.
Óhætt er að segja að Janny Sikazwe frá Sambíu hafi verið umtalaðasti maður gærdagsins í Afríkukeppninni. Það kom þó ekki til af góðu. Sikazwe flautaði nefnilega leikinn tvisvar af áður en honum var lokið, fyrst eftir rétt rúmar 85 mínútur og þegar tíu sekúndur voru eftir, þrátt fyrir að gera hafi þurft hlé á leiknum til að skoða atvik á myndbandi auk vatnspásu. Túnisar voru æfir í leikslok enda rændi Sikazwe þá möguleikanum á að jafna metin. Malímenn voru 1-0 yfir en manni færri. Eftir mikla reikistefnu var ákveðið að spila þær þrjár mínútur sem Sikazwe átti að bæta við leikinn. Ekkert varð þó úr því. Túnisar mættu ekki aftur út á völlinn og fjórði dómarinn dæmdi því Malímönnum sigur, 3-0. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sikazwe kemst í fréttirnar fyrir vafasama dómgæslu. Í nóvember 2018 setti afríska knattspyrnusambandið hann í bann vegna gruns um spillingu. Hann þótti hafa dæmt leik í Meistaradeild Afríku heldur skringilega. FIFA aflétti hins vegar banni Sikazwes í janúar 2019. Sikazwe hefur verið í fremstu röð dómara Afríku um langt árabil. Hann dæmdi til að mynda úrslitaleik HM félagsliða 2016, úrslitaleik Afríkukeppninnar 2017 og tvo leiki á HM 2018. Meðfram dómgæslunni starfar Sikazwe sem kennari.
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti PSG mætir Lyon í undanúrslitum Fótbolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti Fleiri fréttir Arna spilar með FH næstu þrjú árin PSG mætir Lyon í undanúrslitum Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Åge Hareide: Framtíðin er björt Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti