Tæplega 4.000 Cybertruck-bifreiðar innkallaðar

Cybertruck-pallbílarnir eru einkennandi í útliti.
Cybertruck-pallbílarnir eru einkennandi í útliti. AFP/Suzanne Cordeiro

Tæplega 4.000 Tesla Cybertruck-pallbílar hafa verið innkallaðir eftir aðeins fimm mánuði á markaðnum. LA Times segir frá.

Öryggisnefnd umferðar á hraðbrautum Bandaríkjanna tilkynnti um galla í inngjöfinni á bifreiðunum.

Þegar stigið er fast á inngjöfina getur hún losnað með þeim afleiðingum að hún festist niðri, að því er segir í skýrslu öryggisnefndarinnar.

Ekki heyrt af alvarlegum slysum

Cybertruck-bifreiðarnar sem voru innkallaðar voru framleiddar frá 13. nóvember í fyrra og þangað til í apríl.

Tesla mun skipta um gallaðar inngjafir eigendum bílanna að kostnaðarlausu. Í tilkynningu frá framleiðandanum segir að ekki hafi heyrst af alvarlegum slysum vegna gallans.

mbl.is