Erlent

Biðja hæsta­rétt að snúa ó­gildingu dóms yfir Bill Cos­by við

Árni Sæberg skrifar
Bill Cosby var látinn laus eftir tveggja ára fangelsisvist.
Bill Cosby var látinn laus eftir tveggja ára fangelsisvist. Bastiaan Slabbers/Getty Images

Saksóknarar í máli Bills Cosby hafa beðið Hæstarétt Bandaríkjanna að snúa ákvörðun Hæstaréttar Pennsylvaníu, um að ógilda fangelsisdóm yfir honum, við.

Hæstiréttur Pennsylvaníu ógilti þriggja til tíu ára fangelsisdóm leikarans Bills Cosby í júní síðastliðnum. Hann hafði þá mátt dúsa í fangelsi í tvö ár. 

Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu vegna tæknilegra atriða sem ekki töldust samræmast reglum dómstóla í ríkinu. 

Dómarinn í upprunalega dómsmálinu hafði veitt saksóknurum heimild til að kalla aðra meinta brotaþola til vitnaleiðsla eftir að kviðdómendur reyndust ekki geta komist að niðurstöðu í málinu. Hann hins vegar leyfði fimm ásakendum til viðbótar að bera vitni í málinu en þeir höfðu allir kynnst Cosby á níunda áratugi síðustu aldar.

Hæstiréttur ríkisins taldi að vitnisburðir þeirra vitna hafi haft ólögmæt áhrif á kviðdómendur í málinu. Þá hafi samkomulag fyrrverandi saksóknara í ríkinu við Cosby um að hann ætlaði ekki að ákæra Cosby verið bindandi fyrir saksóknarann sem sótti málið.

Ákvörðunin gefi hættulegt fordæmi

Samkvæmt frétt AP er það seinni ógildingarástæðan sem saksóknar telja ranga. Eina sönnunargagnið um meint samkomulag saksóknarans Bruce Castors og Cosbys, sé fréttatilkynning þar sem hann hafi tilkynnt að ekki væru til staðar næg sönnunargögn til að sakfella Cosby.

Saksóknarar telja verulegan vafa vera uppi um að samkomulag hafi yfir höfuð verið til staðar.

Þá segja þeir það gefa hættulegt fordæmi að fréttatilkynning sé talin næg sönnun fyrir tilvist samkomulags um að meintur brotamaður njóti varanlegrar friðhelgi. 

Kevin Steele, saksóknari Montgomerysýslu, segir úrskurð Hæstaréttar Pennsylvaníu vera óverjanlega ákvörðun. Hún muni valda holskeflu áfrýjana í sakamálum, verði henni ekki hnekkt.

„Ákvörðunin, verði henni leyft að standa, mun hafa víðtæk áhrif út fyrir Montgomerysýslu og Pennsylvaníu. Hæstiréttur Bandaríkjanna getur leiðrétt það sem við teljum alvarlegt óréttlæti,“ segir Steele.

Talsmaður Cosbys segir Steele vera haldinn þráhyggju yfir máli leikarans og að markmið hans sé að þóknast „MeToo-skrýlnum“. Lögmenn leikarans hafa statt og stöðugt haldið því fram að mál hans hefði aldrei átt að koma fyrir dómstóla þar sem hann hafi hlotið friðhelgi með samkomulagi við fyrrverandi saksóknara.

Að sögn AP tekur Hæstiréttur Bandaríkjanna einungis eitt prósent þeirra mála sem hann er beðinn um skoða til meðferðar. Því sé það Steele borin von að fá málið tekið upp á æðsta dómstigi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×