Þórður ráðinn framkvæmdastjóri Vistor

Þórður Arnar Þórðarson er framkvæmdastjóri Vistor.
Þórður Arnar Þórðarson er framkvæmdastjóri Vistor. Ljósmynd/Aðsend

Þórður Arnar Þórðarson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Vistor og tekur við af Gunni Helgadóttur, sem sagði upp störfum fyrr á árinu.

Gunnur verður Arnari innan handar til að tryggja farsæla og hnökralausa yfirfærslu, þar til hann tekur við 1. desember nk., að því er fyrirtækið greinir frá í tilkynningu.

Vistor er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum, heilbrigðisvörum og dýraheilbrigðisvörum á Íslandi. Árstekjur Vistor 2019 voru 11,2 milljarðar og stöðugildi 57.

„Arnar hefur starfað sem markaðsstjóri hjá Vistor síðan um mitt ár 2018. Þar áður starfaði Arnar hjá Novo Nordisk, bæði sem vörustjóri í höfuðstöðvum sem og í þýskum og dönskum dótturfélögum fyrirtækisins.

Hann er með M.Sc. í markaðsfræði frá Copenhagen Business School og B.Sc. í hagfræði frá Auburn Montgomery.

Arnar er í sambúð með Ingibjörgu Heiðdal, lækni og eiga þau tvo stráka, tveggja og sex ára. Vistor er dótturfélag innan Veritas samstæðunnar sem samanstendur af sex fyrirtækjum, þar sem hvert dótturfélag hefur sína stjórn og sinn framkvæmdastjóra,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK