Sonur Bandaríkjaforseta smitaður af veirunni Kjartan Kjartansson skrifar 21. nóvember 2020 07:38 Trump yngri er nú sagður í einangrun í veiðikofa á meðan hann nær sér af kórónuveirusmiti. Vísir/EPA
Donald Trump yngri, sonur og nafni Bandaríkjaforseta, greindist smitaður af kórónuveirunni í byrjun síðustu viku. Talsmaður hans segir að hann sé einkennalaus en að hann sé nú í einangrun í veiðikofa sínum. Fjölmörg smit kórónuveiru hafa komið upp í kringum Trump forseta og Hvíta húsið á undanförnum mánuðum. Forsetahjónin smituðust bæði í haust sem og unglingssonur þeirra Barron. Kimberly Guilfoyle, kærasta Trump yngri greindist sömuleiðis smituð í júlí. Mark Meadows, starfsmannastjóri Hvíta hússins, er á meðal fjölda ráðgjafa forsetans sem hafa smitað. Þá hefur verið greint frá því að á annað hundrað leyniþjónustumanna sem gæta öryggis Trump forseta og hafa þurft að fylgja honum á kosningafundi og aðra viðburði víðsvegar um landið hafi smitast af veirunni. Trump yngri hefur tekið þátt í því með föður sínum að gera lítið úr alvarleika kórónuveirufaraldursins sem hefur dregið um 250.000 manns í Bandaríkjunum til dauða. Í nýlegu viðtali hélt sonur forsetans því fram að dánartíðni af völdum Covid-19 væri „nánast engin“ og að yfirvöld hefðu stjórn á faraldrinum. Í gær greindust 192.000 manns smitaðir af veirunni vestanhafs. Vangaveltur hafa lengi verið um að Trump yngri hafi áhuga á að bjóða sig sjálfur fram til forseta þegar fram líða stundir.
Bandaríkin Donald Trump Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Búast má við slyddu Veður Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Fleiri fréttir Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Sjá meira