Allt að tólf milljóna veitingastyrkur í boði Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. janúar 2022 15:26 Nýr veitingastyrkur verður kynntur til sögunnar. Vísir/Hanna Eigendur ákveðinna veitingastaða geta átt rétt að allt að tólf milljóna veitingastyrk til að mæta áhrifum sem samkomutakmarkanir hafa haft á rekstur þeirra.
Þetta er á meðal þeirra efnahagslegu aðgerða sem ríkisstjórnin hyggst ráðast í, eftir að tilkynnt var í dag að samkomutakmarkanir yrðu hertar til 2. febrúar næstkomandi. Skemmtistöðum, krám, spilasölum og spilakössum verður lokað en áfram mega 20 manns að hámarki vera saman í rými á veitingastöðum, sem mega hafa opið til 21. Stefnt er að því að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, muni leggja fram frumvarp þar sem þeir, sem reka veitingastaði með veitingaleyfi II og III og orðið hafa fyrir minnst tuttugu prósent tekjufalli í desember 2021 til mars á þessu ári vegna takmarkana á opnunartíma, geti sótt um styrk sem geti numið allt að tólf milljónum króna fyrir tímabilið. Styrkfjárhæðin ræðst annars vegar af fjölda stöðugilda og hins vegar af tekjufalli hvers fyrirtækisins. Þá mun ríkisstjórnin einnig leggja fram frumvarp sem heimilar ákveðnum veitingastöðum, sem hafa orðið að sæta takmörkunum á opnunartíma, að fresta staðgreiðslu skatta og greiðslu tryggingagjalds. „Frá því samkomutakmarkanir voru hertar í nóvember er merkjanlegur samdráttur í greiðslukortaveltu hjá fyrirtækjum í veitingarekstri, ólíkt þróun í hagkerfinu í heild. Hertar takmarkanir hafa þannig haft mikil áhrif á starfsemi ákveðinna fyrirtækja í veitingarekstri og leitt til samdráttar í tekjum þeirra. Á þetta fyrst og fremst við um fyrirtæki með vínveitingaleyfi, s.s. veitingahús og bari,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Eigendum veitingastaða með veitingaleyfi í flokki II og III verður þannig heimilað að fresta allt að tveimur greiðslum á afdreginni staðgreiðslu launa og tryggingagjalds sem eru á gjalddaga 1. janúar til og með 1. júní á árinu 2022. Í frumvarpinu er einnig lagt til að umsóknarfrestur vegna viðspyrnustyrkja fyrir nóvembermánuð 2021 verði framlengdur til 1. mars 2022, en þeir styrkir ná til allra atvinnugreina að því gefnu að tekjufallsviðmið séu uppfyllt. Frestur til að sækja um viðspyrnustyrki rann út 31. desember 2021.
Samkomubann á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Veitingastaðir Næturlíf Tengdar fréttir Lagði til að öllu yrði skellt í lás í tíu daga Til greina kemur að beita víðtækum lokunum í samfélaginu sem ná til fyrirtækja, stofnana og skóla í takmarkaðan tíma til að ná fjölda kórónuveirutilfella hratt niður, að mati sóttvarnalæknis. Gætu slíkar lokanir til að mynda staðið í tíu daga og í kjölfarið verið aflétt í skrefum. 14. janúar 2022 14:48 Segir veitingaaðilum létt með óbreyttum reglum og styrkjum Reglur hvað varða veitingastaði hér á landi eru nokkurn veginn óbreyttar. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir þetta mikinn létti fyrir veitingahúsaeigendur og hótelrekendur sem hafi verið farnir að reikna með enn harðarði takmörkunum. 14. janúar 2022 14:18 Tíu mega koma saman Sóttvarnaraðgerðir verða hertar og taka þær gildi á miðnætti. Heilbrigðisráðherra segir að sóttvarnalæknir hafi lagt fram þrjár leiðir: Óbreyttar aðgerðir, færa samkomutakmarkanir úr tuttugu manns í tíu, eða lokun á samfélaginu í tíu daga. Ríkisstjórnin hafi valið leið tvö. 14. janúar 2022 12:03 Meiri neysla við hápunkt faraldursins en árið 2019 Kortavelta innlendra greiðslukorta jókst um 14% í desember miðað við sama mánuð árið 2020. Kortavelta Íslendinga erlendis nam tæplega 18 milljörðum króna og jókst um 90% milli ára miðaða við fast gengi. 14. janúar 2022 13:32 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Sjá meira
Lagði til að öllu yrði skellt í lás í tíu daga Til greina kemur að beita víðtækum lokunum í samfélaginu sem ná til fyrirtækja, stofnana og skóla í takmarkaðan tíma til að ná fjölda kórónuveirutilfella hratt niður, að mati sóttvarnalæknis. Gætu slíkar lokanir til að mynda staðið í tíu daga og í kjölfarið verið aflétt í skrefum. 14. janúar 2022 14:48
Segir veitingaaðilum létt með óbreyttum reglum og styrkjum Reglur hvað varða veitingastaði hér á landi eru nokkurn veginn óbreyttar. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir þetta mikinn létti fyrir veitingahúsaeigendur og hótelrekendur sem hafi verið farnir að reikna með enn harðarði takmörkunum. 14. janúar 2022 14:18
Tíu mega koma saman Sóttvarnaraðgerðir verða hertar og taka þær gildi á miðnætti. Heilbrigðisráðherra segir að sóttvarnalæknir hafi lagt fram þrjár leiðir: Óbreyttar aðgerðir, færa samkomutakmarkanir úr tuttugu manns í tíu, eða lokun á samfélaginu í tíu daga. Ríkisstjórnin hafi valið leið tvö. 14. janúar 2022 12:03
Meiri neysla við hápunkt faraldursins en árið 2019 Kortavelta innlendra greiðslukorta jókst um 14% í desember miðað við sama mánuð árið 2020. Kortavelta Íslendinga erlendis nam tæplega 18 milljörðum króna og jókst um 90% milli ára miðaða við fast gengi. 14. janúar 2022 13:32