fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
433Sport

Eliteserien: Alfons Sampsted og félagar stigi frá toppsætinu – Viðar Ari skoraði aftur

Ísak Gabríel Regal
Sunnudaginn 12. september 2021 19:22

Alfons Sampsted / Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenski landsliðsmaðurinn Alfons Sampsted og félagar í Bodö/Glimt eru einu stigi frá toppsæti norsku úrvalsdeildarinnar eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Odd á heimavelli.

Bodö byrjaði daginn í toppsætinu en er nú stigi á eftir Molde sem vann 4-0 sigur á Mjondalen fyrr í dag. Alfons Sampsted byrjaði leikinn í bakverðinum en kom af velli fyrir Joel Muvka.

Sandefjord vann 3-0 sigur á Valeranga. Viðar Ari Jónsson var í byrjunarliði Sandefjord og skoraði þriðja mark liðsins þegar að fimmtán mínútur vor ueftir af venjulegum leiktíma. Viðar Örn Kjartansson var í byrjunarliði Valeranga en kom af velli á 79. mínútu. Sandefjord er í 10. sæti með 24 stig. Valeranga er í 8. sæti með 26 stig.

Kristiansund vann 2-1 útsigur á Stromsgodset. Ari Leifsson var í byrjunarliði Stromsgodset en Valdimar Ingumundarson byrjaði leikinn á bekknum og kom inn á á 79. mínútu í stöðunni 1-1. Aliou Coly skoraði sigurmark Kristiansund á þriðju mínútu uppbótartíma. Kristiansund er í 3. sæti með 32 stig, fjórum stigum á eftir toppsætinu. Stromsgodset er í 9. sæti með 25 stig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“
433Sport
Í gær

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?