Vatíkanið opnar rannsókn á 40 ára hvarfi unglingsstúlku Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar 22. janúar 2023 15:30 Ítalskur almenningur hefur reglulega krafist þess að rannsókn hefjist að nýju á hvarfi Emanuelu Orlandi sem hvarf í Róm sumarið 1983. Lögreglan í Vatíkaninu hefur nú orðið við þeirri kröfu. Pietro Orlandi, bróðir Emanuelu, er lengst til vinstri á myndinni. Alessandra Benedetti - Getty Images Páfagarður hefur heimilað að rannsókn verði hafin á hvarfi 15 ára stúlku sem hvarf fyrir 40 árum, sumarið 1983. Þetta er talið eitt dularfyllsta mannshvarf í sögu Vatíkansins og margar kenningar benda til tengsla á milli Vatíkansins og Mafíunnar.
Emanuela Orlandi var 15 ára þegar hún hvarf, sumarið 1983, á leið heim úr flaututíma. Fjölskylda hennar bjó í Vatíkaninu, þar sem faðir hennar starfaði. Margar kenningar um hvarf Emanuelu Örlög hennar eru á huldu, fjölmargar kenningar hafa verið á reiki um hvað gerðist og fjölskylda hennar hefur í 40 ár barist fyrir því að komast að sannleikanum. Vatíkanið hefur nú samþykkt að rannsókn málsins verði opnuð að nýju, nokkrum mánuðum eftir að fjögurra þátta heimildamynd, The Vatican Girl, um hvarf hennar kom út á Netflix, og örstuttu eftir að hinn íhaldssami páfi Benedikt 16. lést. Miklar hræringar voru á Ítalíu í byrjun 9. áratugarins; Mafían var umsvifamikil, ítalski kommúnistaflokkurinn var sterkasti kommúnistaflokkur Vestur-Evrópu og hinn tyrkneski Ali Agca afplánaði dóm fyrir að reyna að myrða páfa Jóhannes Pál II. Í Róm höfðu glæpasamtökin Banda della Magliana töglin og hagldirnar. Leiðtogi þeirra hét Enrico Renatino De Pedis og hann var með Vatíkanið og fjölmarga stjórnmálamenn í vasanum. Hvarfið talið tengjast undirheimastarfsemi Á einhvern dularfullan hátt tengist hvarf hinnar 15 ára gömlu Emanuela öllum þessum dökku heimum. Ali Agca sagðist alla tíð vita hvað kom fyrir hana, henni hafi jafnvel verið rænt til að fá hann lausan úr fangelsi, ástkona De Pedis kom fram eftir að hann var myrtur og sagði hann hafa rænt henni og afhent hana presti sem hefði farið með hana í Vatíkanið. Kenningar þessu tengdar ganga út á að Emanuela hafi átt að vera skiptimynt vegna viðskipta Mafíunnar við banka Vatíkansins. Páfagarður hafi tekið peninga Mafíunnar í bankanum og notað þá til að styðja baráttu Samstöðu við kommúnismann í Póllandi þaðan sem Jóhannes Páll páfi var. Mafían hafi viljað fá þá peninga aftur og notað Emanuelu sem skiptimynt. Það hafi hins vegar ekki gengið eftir og því hafi hún verið myrt. Nýtt vitni segir hana fórnarlamb kynferðisofbeldis í Vatíkaninu Nýjustu upplýsingarnar koma frá skólasystur Emanuelu sem kemur fram í heimildamyndinni. Hún segir að Emanuela hafi verið beitt kynferðislegu ofbeldi af presti í Vatíkaninu. Hún telur að þar sé að finna lykilinn að hvarfi hennar. Fjölmargar aðrar kenningar hafa komið fram á þessum 40 árum. En engin svör. Lögfræðingur fjölskyldu Emanuelu segist sannfærð um að svarið sé að finna í Vatíkaninu. Þögn þess hafi verið ærandi í gegnum árin, en að nú eygi fjölskyldan von um að komast að sannleikanum.
Ítalía Páfagarður Erlend sakamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Innlent „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Erlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Fleiri fréttir Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Sjá meira