Innlent

Sjö­tíu send heim vegna smits í Ung­menna­búðum UMFÍ á Laugar­vatni

Atli Ísleifsson skrifar
UMFÍ hefur starfrækt ungmennabúðir frá árinu 2005 og eru þær fyrir nemendur í níunda bekk grunnskóla um allt land.
UMFÍ hefur starfrækt ungmennabúðir frá árinu 2005 og eru þær fyrir nemendur í níunda bekk grunnskóla um allt land. Aðsend/UMFÍ

Senda þurfti sjötíu nemendur í níunda bekk grunnskóla heim úr Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni í gær eftir að nemandi í búðunum greindist með Covid-19.

Í tilkynningu frá UMFÍ segir að nemendurnir hafi komið í búðirnar á mánudag og hefðu að öllu óbreyttu farið heim um hádegisbil í dag. Skólastjórnendur og foreldrar nemendanna hafi verið upplýstir um málið.

Haft er eftir Sigurði Guðmundssyni, forstöðumanni Ungmennabúða UMFÍ á Laugarvatni, að þeim þyki alveg ótrúlega leiðinlegt að smit hafi komið upp í búðunum.

„Það var búið að vera svo gaman hjá nemendunum í vikunni og þeim liðið alveg frábærlega vel á Laugarvatni. Engum er um að kenna að svona fór. Við erum búin undir aðstæður eins og þessar og vitum að þær geta áfram komið upp í samfélaginu,‟ er haft eftir Sigurði.

Sigurður Guðmundsson er forstöðumaður Ungmennabúða UMFÍ á Laugarvatni.UMFÍ

Leiðinlegt fyrir smitað nemandann

Hann segir að samstundis hafi verið gripið til varúðarráðstafana og málið unnið í nánu samráði við almannavarnir og yfirvöld. „Þegar niðurstaða úr COVID-prófum lá fyrir í gærkvöldi var tekin ákvörðun um að senda alla nemendur heim. Unnið er að ítarlegri sótthreinsun húsnæðis ungmennabúðanna. Allt starfsfólk þeirra þarf í kjölfarið að fara í smitgát og PCR-próf.“

Þá segir hann að fyrst og fremst sé þetta afar leiðinlegt fyrir smitaða nemandann. „Ég vona að hann finni ekki mikið fyrir áhrifum smitsins. Við munum að sjálfsögðu halda áfram að gæta að sóttvörnum okkar og hreinlæti eins og við gerum alltaf,“ segir Sigurður.

UMFÍ hefur starfrækt ungmennabúðir frá árinu 2005 og eru þær fyrir nemendur í níunda bekk grunnskóla um allt land.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×