Samþykkja sölu á hlut Hafnarfjarðar í HS Veitum fyrir 3,5 milljarða Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 28. október 2020 22:57 Hafnarfjörður hefur verið á meðal hluthafa í HS Veitum frá stofnun árið 2008. Fyrirtækið annast sölu og dreifingu á heitu vatni, köldu vatni og dreifingu á raforku á Suðurnesjum, á nokkrum stöðum á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu. Í Hafnarfirði snýr þjónusta fyrirtækisins að dreifingu á rafmagni að því er segir í tilkynningu frá bænum. Vísir
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykkt að selja 15,42% hlut í HS Veitum hf. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í dag. Hlutur bæjarins verður seldur fyrir þrjá og hálfan milljarð króna en kaupendur að bréfunum eru að stærstum hluta lífeyrissjóðir að því er fram kemur í tilkynningu frá Hafnarfjarðarkaupstað nú í kvöld. Undirbúningur að sölu hlutabréfanna hófst með samþykki bæjarráðs í apríl en ákvörðunin hefur sætt talsverðri gagnrýni. „Hluturinn var settur í opið útboðsferli og sýndu fjölmargir fjárfestar áhuga á hlutabréfunum. Eftir sex mánaða ítarlegt söluferli hefur verið ákveðið að taka tilboði HSV eignarhaldsfélags í hlutinn. Að baki félaginu standa 14 lífeyrissjóðir (90%) auk annarra fagfjárfesta,“ segir meðal annars í tilkynningunni. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, fagnar áfanganum. „Vel heppnuð sala á liðlega 15% hlut í HS Veitum er fagnaðarefni fyrir Hafnfirðinga. Gott verð fékkst fyrir hlutinn og mun andvirðið styrkja bæjarsjóð Hafnarfjarðarbæjar verulega til að mæta tekjutapi og efnahagslegum þrengingum vegna Covid-19 faraldursins,“ er haft eftir Rósu í tilkynningunni. Fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafa margir hverjir gagnrýnt áformin um sölu bæjarins á hlutabréfum í HS Veitum en fulltrúi Miðflokksins í bæjarstjórn hefur til að mynda sagt ákvörðunina fela í sér ógn við almannahagsmuni Hafnfirðinga. Þá hefur oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn jafnframt lýst efasemdum. Þessu kveðst bæjarstjóri ekki sammála. „Hluturinn í HS Veitum hefur engin áhrif á íbúa í Hafnarfirði en verðlagning á raforkudreifingu er bundin ströngum skilyrðum í raforkulögum. Kaupendur eru að mestu lífeyrissjóðir sem standa að baki yfir helmingi af lífeyriskerfi landsins. Andvirði sölunnar dregur úr lánsfjárþörf Hafnarfjarðarbæjar og þar með afborgunum og vöxtum í framtíðinni og veitir um leið færi á því að sækja fram með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi,“ er ennfremur haft eftir Rósu í tilkynningunni sem send var út í kvöld.
Orkumál Hafnarfjörður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svandís boðar til blaðamannafundar Innlent „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Innlent Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Erlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Fleiri fréttir Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Pallborð í dag og niðurstöður nýrrar könnunar Svandís boðar til blaðamannafundar Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Sjá meira