Stór jarðskjálfti skók Krít

Frá Krít.
Frá Krít. Ljósmynd/Thinkstock

Öflugur jarðskjálfti reið yfir grísku eyjuna Krít rétt í þessu. Fyrstu mælingar benda til þess að hann hafi verið um 6,3 að stærð. 

Fyrstu fréttir af svæðinu benda til þess að ekki hafi orðið manntjón. Skjálftamiðjan er rakin um 24 kílómetra frá þorpinu Zakros, eða 405 kílómetra suðaustur af Aþenu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert