Óskar Örn með þrennu í stórsigri KR og Víkingur skoraði sex gegn FH Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. febrúar 2021 13:15 Óskar Örn kann vel við sig í ljósbláu. Hann skoraði þrjú mörk og lagði upp önnur þrjú í dag. Vísir/Daniel Thor Tveimur leikjum í riðli 2 í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu er nú lokið, báðir voru þeir í riðli 2 í A-deild. KR vann 8-2 sigur á sínum fornu fjendum í Fram. Þá vann Víkingur öruggan 6-1 sigur á FH í Skessunni í Hafnafirði.
KR-ingar slökuðu á undir lok leiks Segja má að leikur KR og Fram hafi verið leikur kattarins að músinni en gestirnir voru hársbreidd frá því að vinna sér inn sæti í Pepsi Max deild karla á síðustu leiktíð, þeir áttu hins vegar ekki roð í KR í dag. Staðan var 2-0 í hálfleik en í síðari hálfleik skoruðu KR-ingar að vild. Komust þeir í 7-0 áður en Haraldur Einar Ásgrímsson og Aron Þórður Albertsson minnkuðu muninn fyrir gestina undir lok leiks. Hinn 37 ára gamli Óskar Örn Hauksson skoraði þrennu í liði KR. Hans önnur á undirbúningstímabilinu en hann skoraði einnig þrennu gegn Fjölni á Reykjavíkurmótinu. Þá lagði Óskar Örn einnig upp tvö mörk í liði KR. Guðjón Baldvinsson skoraði tvö mörk í liði KR og átti skot í stöng. Hin þrjú mörkin skoruðu Pálmi Rafn Pálmason úr vítaspyrnu, Atli Sigurjónsson með skoti af löngu færi í autt markið eftir að uppspil Fram misheppnaðist og Oddur Ingi Bjarnason skoraði svo í uppbótartíma leiksins. Skömmu áður hafði varamaðurinn Gunnar Gunnarsson fékk beint rautt spjald í liði Fram fyrir slæma tæklingu á Oddi Inga. Lokatölur 8-2 og KR komnir með fjögur stig að loknum tveimur leikjum en liðið gerði 1-1 jafntefli við Víking í fyrstu umferð riðilsins. Fram er með þrjú stig eftir að hafa unnið 3-2 sigur á Þór Akureyri á sama tíma. Erlingur Agnarsson var frábær í liði Víkings í dag.Vísir/Bára Víkingar með sýningu í Skessunni Vuk Oskar Dimitrijevic kom heimamönnum í FH yfir snemma leiks eftir undirbúning Jónatans Inga Jónssonar en svo pökkuðu heimamenn einfaldlega í töskur og héldu heim. Karl Friðleifur Gunnarsson jafnaði metin fyrir Víking eftir aukaspyrnu og Erlingur Agnarsson kom gestunum yfir áður en fyrri hálfleikur var úti. Síðari hálfleikur var einkaeign Víkings. Erlingur bætti við þriðja markinu úr vítaspyrnu og í kjölfarið bætti Nikolaj Hansen við fjórða markinu áður en Helgi Guðjónsson skoraði tvö mörk til viðbótar fyrir gestina, lokatölur því 1-6 í Skessunni í dag. Víkingur einnig með fjögur stig – líkt og KR – á meðan FH er með þrjú stig eftir sigur á Kórdrengjum í fyrstu umferð riðilsins.
Fótbolti Íslenski boltinn KR FH Víkingur Reykjavík Mest lesið Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið Fótbolti „Við erum helvíti seigir“ Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Íslenski boltinn Casemiro komst ekki í Copa América-hóp Brassa Fótbolti Styrmir og félagar komnir í sumarfrí Körfubolti Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Íslenski boltinn „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Staðfestir verst geymda leyndarmál fótboltans Fótbolti Segja vinslit hjá Tiger Woods og Rory McIlroy Golf Fleiri fréttir „Við erum helvíti seigir“ Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Oliver með þrennu gegn gömlu félögunum Sextán ára stelpa skoraði í Bestu eftir stoðsendingu frá einni fimmtán ára „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Eysteinn ráðinn framkvæmdastjóri KSÍ Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Uppgjör: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Fyrsta tap nýliðanna Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-2 | Þrír norðansigrar í röð Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Sjá meira