Tólf knattspyrnufélög hafa staðfest að þau ætli sér að stofna ofurdeild Evrópu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. apríl 2021 23:04 Það virðist sem forráðamenn liðanna 12 hafi ekki viljað eyða of miklu púðri í merki deildarinnar en það var greinilega búið til í tölvuforritinu Paint. The Super League Orðrómar dagsins reyndust sannir. Í kvöld var staðfest að tólf lið séu svokallaðir „stofnmeðlimir“ í því sem á að verða ofurdeild Evrópu í knattspyrnu.
Fyrr í dag fór Vísir yfir það sem virtust eingöngu verða orðrómar varðandi stofnun ofurdeildar Evrópu. Þar kom fram að tólf lið - sex frá Englandi, þrjú frá Ítalíu og þrjú frá Spáni - stefndu á að opinbera hugmynd sína um slíka deild og hvernig henni yrði háttað í kvöld. Nú seint í kvöld staðfestu félögin loks að þau ætluðu sér að stofna slíka deild og ætti hún að koma í staðinn fyrir Meistaradeild Evrópu. Liðin tolf eru eftirfarandi: Barcelona, Real Madrid, Atlético Madrid, Juventus, AC og Inter Milan, Manchester United og City, Liverpool, Chelsea, Arsenal og Tottenham Hotspur. Formaður deildarinnar er Florentino Perez, forseti Real Madrid, og varaformenn eru Andrea Agnelli, einn af stjórnarmönnum Juventus, og Joel Glazer, einn af eigendum Manchester United. Ofurdeild Evrópu er ætlað að koma í stað Meistaradeildar Evrópu. Alls verða 20 félög í deildinni, þar af 15 „stofnmeðlimir“ sem geta ekki fallið. Ekki hefur verið ákveðið hvernig hin fimm liðin verða valin hverju sinni. Fyrirkomulagið er svo ekki endanlega staðfest en sem stendur væri um tvo riðla að ræða með tíu liðum hvort. Spilað yrði heima og að heiman í hvorum riðli. Síðan færu eflaust efstu fjögur liðin í 8-liða úrslit. Hvernig dregið yrði í riðla hefur ekki verið útskýrt nánar. Liðin hafa ákveðið að tilkynna áform sín þó svo að knattspyrnusamband Evrópu sem og knattspyrnusambönd Englands, Ítalíu og Spánar hafi gefið það út að þau lið sem taka þátt í keppni sem þessari – sem væri ekki á vegum UEFA né FIFA – yrði meinaður aðgangur í deildarkeppni þess lands sem liðið er frá. Það er ljóst að næstu dagar verða forvitnilegir en við fyrstu sýn virðist almennt mikið ósætti með ákvörðun félaganna. Gary Neville lét til að mynda sitt fyrrum félag, Manchester United, heyra það í beinni útsendingu á Sky Sports í kvöld. And there you go.... pic.twitter.com/l8fwvhEo60— James Pearce (@JamesPearceLFC) April 18, 2021 Þá hefur gjörningurinn fengið nær eingöngu slæm viðbrögð á samfélagsmiðlum. Athygli vekur að liðin tólf sögðu í yfirlýsingu sinni að þau vildu stofna deildina í samvinnu við UEFA og FIFA. Það virðist sem enginn hafi verið að hlusta þegar UEFA gaf þeim afarkosti fyrr í dag. UEFA could ban every player and club involved in the European Super League from ALL European or international competitions, according to @FabrizioRomano. — Sky Sports News (@SkySportsNews) April 18, 2021 Fyrr í dag staðfestu Þýskalands- og Evrópumeistarar Bayern Munchen að félagið myndi ekki þátt í deildinni. Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain tóku í sama streng. Liðin í 7. og 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem og 5. sæti á Ítalíu eru hins vegar meðal stofnmeðlima ofurdeildar Evrópu.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Ofurdeildin Bretland England Ítalía Spánn Mest lesið Kelce framlengir og verður launahæsti innherji sögunnar Sport „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ Körfubolti Rúnar Páll: Við eigum þetta ekki skilið en svona er þetta Fótbolti „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ Íslenski boltinn Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg Körfubolti Lopetegui tekur við AC Milan Fótbolti „Skákin er bara byrjuð“ Körfubolti Albert skoraði þegar Genoa gulltryggði sætið í efstu deild Fótbolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn „Það er mikill efniviður í Fram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lopetegui tekur við AC Milan Rúnar Páll: Við eigum þetta ekki skilið en svona er þetta „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ Guðmundur Baldvin: Þrjú stig í hús á erfiðum velli og það er bara frábært Lewandowski með þrennu er Barcelona kom til baka gegn Valencia „Það er mikill efniviður í Fram“ Albert skoraði þegar Genoa gulltryggði sætið í efstu deild Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Stefán Teitur skoraði í óvæntum sigri á Sverri Inga og félögum Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Mikil virðing fyrir Orra: Hárið stundum flækt en alltaf bros á vör Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ Hetjan Orri Steinn eftir þrennuna: Besta tilfinning í heimi „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Lærisveinar Freys lifa í voninni „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn