Hávaxnasti Ólympíumeistari sögunnar vann gullið sitjandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. september 2021 12:30 Morteza Mehrzad sýnir Ólympíugullið með liðsfélögum sínum. Getty/Tasos Katopodis Morteza Mehrzadselakjani vann gull á Ólympíumóti fatlaðra á dögunum en hann var í aðalhlutverki í íþróttinni þar sem Íranar hafa mikla yfirburði.
Mehrzadselakjani fer ekkert framhjá neinum en hann er næsthávaxnasti maður í heimi og mælist tveir metrar og 46 sentimetrar á hæð. Hann hjálpaði aftur á móti þjóð sinni að vinna Ólympíugullið sitjandi. Mehrzadselakjani, sem er jafnan kallaður Mehrzad, vann gullið í sitjandi blaki með félögum sínum í íranska landsliðinu. Íran vann Rússa 3-1 (25-21 25-14 19-25 25-17) í úrslitaleiknum. Þetta voru sjöundu gullverðlaun Írana í greinnni frá árinu 1988 og Mehrzad vann þarna sitt annað gull því hann var líka með í Ríó fyrir fimm árum. (CNN) - The tallest Paralympian in history and the joint-second tallest man in the world, #MortezaMehrzadselakjani, better known as Mehrzad, helped #Iran successfully defend its #Paralympic title on Saturday with a 3-1 victory against the #RPC #volleyballhttps://t.co/G9xcBjQCd5— Kayhan Life (@KayhanLife) September 6, 2021 Rússar réðu ekkert við smössin frá Mehrzad sem skoraði alls 28 stig í leiknum en næststigahæsti maðurinn í íranska liðinu var með 17 stig. 25 af 28 stigum Mehrzad komu með smössum. Mehrzad er nú 33 ára gamall en hann byrjaði bara að spila þessa íþrótt aðeins sex mánuðum fyrir leikana í Ríó árið 2016 þá orðinn 28 ára. „Áður en ég fór að spila sitjandi blak þá sat ég bara heima hjá mér af því að ég skammaðist mín fyrir hæðina,“ sagði Morteza Mehrzadselakjani í viðtölum við fjölmiðla eftir sigurinn á Bosníu í undanúrslitaleiknum. „Ég fór í sjónvarpsviðtal og eftir það bauð blaksambandið mér að koma og þetta voru eins konar galdrar. Þetta breytti lífi mínu mikið,“ sagði Mehrzad. Back-to-back sitting volleyball Paralympic golds for Iran Morteza Mehrzadselakjani, the joint-second tallest man in the world at 8ft 1in, joins the celebrations #Tokyo2020 #C4Paralympics pic.twitter.com/4tRsPXJkdn— C4 Paralympics (@C4Paralympics) September 4, 2021 Mehrzad situr vissulega á gólfinu en þegar hann teygir hendurnar upp þá eru þær í 182 sentimetra hæð og mjög hátt yfir netinu. Mehrzad þykir samt óþægilegt að fá svona mikla athygli í samanburði við liðsfélaga sína. „Það er mjög erfitt fyrir mig, sagði Mehrzad. Hann mjaðmagrindarbrotnaði í hjólaslysi sem táningur og eftir það hætti hægri fótur hans að vaxa. Hann er því styttri en sá vinstri sem gerir Mehrzad mjög erfitt með gang. „Ég er bara hávaxnari en aðrir leikmenn liðsins. Allt liðið er mjög mikilvægt og þeir skila allir sínum hlutverkum vel. Ég er bara liðsmaður sem reyni að gera mitt vel. Ég veit samt að líkamsburðir mínir eru mikilvægir fyrir sitjandi blak og ég reyni bara að nýta mér þá,“ sagði Mehrzad. Morteza Mehrzad nær hér einu góðu smassi.Getty/Tasos Katopodis
Ólympíumót fatlaðra Blak Mest lesið Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Handbolti Gunnar um að mæta dóttur sinni: „Hélt langmest með henni af öllum inn á vellinum“ Sport Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Enski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir Körfubolti „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Handbolti Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Enski boltinn „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ Körfubolti Dagskráin í dag: Fálkar í Ljónagryfju, Besta deildin og Formúla 1 Sport „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Körfubolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Fálkar í Ljónagryfju, Besta deildin og Formúla 1 Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Gunnar um að mæta dóttur sinni: „Hélt langmest með henni af öllum inn á vellinum“ „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki „Við áttum slæman dag og þær góðan dag“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Keflavík 4-2 | Nýliðarnir nældu í sigur og eru enn ósigraðir Leverkusen lætur ekki undan og lagði Roma á útivelli Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri „Ég vil vera þarna uppi að berjast um flest mörk“ „Held að Katla mín fyrirgefi mér þetta alveg“ PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Uppgjörið og viðtöl: Þór/KA - Þróttur | Sandra María algjörlega óstöðvandi Uppgjör: Valur - Víkingur 7-2 | Sýning hjá Amöndu og Nadía skoraði í stórsigri Valskvenna Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 66-58 | Njarðvíkingar einum sigri frá úrslitum Segir verðlaunafé valda sundrung meðal íþróttafólks Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Sjáðu mark Füllkrugs sem kom Dortmund í bílstjórasætið Emil tekur við Haukum af Ingvari Vonar að mamma horfi loksins á hann „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti