Gætu skyldað tæknirisa til að finna og fjarlægja barnaklám Kjartan Kjartansson skrifar 11. maí 2022 14:38 Drög að nýjum reglum til að uppræta barnaklám voru kynntar í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í dag. Vísir/EPA Drög að reglum sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur til meðferðar gæti sett skyldur á herðar tæknirisa eins og Google og Meta að finna og fjarlægja barnaklám á netinu. Persónuverndarsamtök óttast að friðhelgi samskipta fólks geti verið ógnað verði reglurnar að veruleika.
Reglurnar eiga að koma í stað núgildandi reglna sem eru valkvæðar fyrir fyrirtæki. Framkvæmdastjórnin telur þær hafa dugað skammt til að vernda börn. Þannig bárust fleiri en milljón tilkynninga um misnotkun á börnum innan sambandsins árið 2020 og fjölgaði þeim um 64% í fyrra. Þá er um 60% af barnaníðsefni í heiminum hýst á evrópskum netþjónum, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. Fyrirtækjunum yrði gert skylt að tilkynna um og fjarlægja þekktar og nýjar myndir og myndbönd og einnig nettælingu. Sérstök eftirlitsstofnun fær það verkefni að taka við tilkynningum fyrirtækjanna og vísa þeim til lögreglu eftir atvikum. Reglurnar ættu bæði við um nethýsingu og netþjónustu, þar á meðal samskiptaforrit. Samtökin Evrópsk stafræn réttindi segja að með þessu sé dulkóðuðum samskiptum ógnað og opnað verði á möguleikann á gerræðislegu eftirliti með fólki á netinu. Talsmenn fyrirtækjanna taka í sama streng. Fulltrúa Meta segir mikilvægt að reglurnar grafi ekki undan dulkóðuðum samskiptum sem vernda öryggi og einkalíf milljarða manna, þar á meðal barna. Aðildarríki Evrópusambandsins og Evrópuþingið þurfa að samþykkja tillögurnar áður en þær öðlast gildi.
Kynferðisofbeldi Tækni Meta Google Evrópusambandið Persónuvernd Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Gular viðvaranir á Suðurlandi og Suðausturlandi og Faxaflóa Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Sjá meira