Rafíþróttir

Tilþrifin: Blazter hendir í ás í öruggum sigri Viðstöðu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Blazter var frábær í sigri Viðstöðu gegn Ten5ion í gærkvöldi.
Blazter var frábær í sigri Viðstöðu gegn Ten5ion í gærkvöldi.

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Blazter í liði Viðstöðu sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Viðstöðu og Ten5ion mættust í fyrri viðureign gærkvöldsins þegar sextánda umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO hófst. Viðstöðu hafði yfirhöndina allan leikinn og vann fyrstu níu loturnar. Ten5ion klóraði í bakkann í seinni hálfleiknum, en sigur Viðstöðu varð í raun aldrei í hættu og liðið vann að lokum góðan sigur, 16-11.

Það var helst fyrir einstaklingsframtak Blazters og Pabo að Viðstöðu hleypti andstæðingum sínum aldrei of nálægt sér og í stöðunni 8-0 sýndi Blazter einmitt frábær tilþrif þegar hann tók út hvern einn og einasta liðsmann Ten5ion.

Tilþrif Blazters má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Klippa: Elko tilþrifin: Blazter hendir í ás í öruggum sigri Viðstöðu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×