Bæði fullviss um sigur í Félagsdómi Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Heimir Már Pétursson skrifa 3. febrúar 2023 14:49 Bæði Sólveig Anna formaður Eflingar og Halldór Benjamín framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins eru viss um sigur fyrir Félagsdómi. Vísir Bæði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins eru fullviss um sigur í deilu SA og Eflingar fyrir Félagsdómi. Dómurinn kemur saman klukkan fjögur í dag til að skera úr um hvort boðuð verkföll Eflingar séu lögmæt í ljósi þess að miðlunartillaga frá ríkissáttasemjara liggur fyrir.
Stór dagur er runninn upp í deilu Eflingar við SA annars vegar og ríkissáttasemjara hins vegar. Nú stendur yfir málflutningur í máli Eflingar og ríkissáttasemjara fyrir héraðsdómi en sáttasemjari hefur farið fram á að Efling afhendi kjörskrá sína svo hann geti lagt miðlunartillögu sína í atkvæðagreiðslu hjá félagsfólki. Líklegt er að héraðsdómur gefi sér helgina til að taka ákvörðun. Klukkan fjögur síðdegis kemur Félagsdómur svo saman til að taka fyrir mál SA og Eflingar. Fyrirhuguð eru verkföll meðal Eflingarliða á Íslandshótelum og eiga þau að hefjast að óbreyttu á þriðjudag. Samtök atvinnulífsins vilja fá úr því skorið hvort verkföllin séu lögleg þar sem miðlunartillaga liggur fyrir frá ríkissáttasemjara. Báðar fylkingar eru vissar um sigur fyrir Félagsdómi. „Fyrir Félagsdómi er ég alveg 100 prósent sannfærð, meira en hér, vegna þess að málatilbúnaður Samtaka atvinnulífsins er eins fráleitur og hægt er að hugsa sér,“ sagði Sólveig Anna í samtali við fréttastofu á leið inn í dómsal í héraðsdómi eftir hádegi í dag. „Við erum raunsæ. Við teljum að lögin séu okkar megin. Það er okkar skoðun að enginn sé hafinn yfir lögin, ekki Efling heldur, og ég vænti þess að Félagsdómur verði tiltölulega fljótur að úrskurða í þessu máli,“ segir Halldór Benjamín í samtali við fréttastofu. Auk dómsmálanna sem hér hafa verið rakin hófst atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun hjá Olíudreifingu, Skeljungi, Samskipum, Berjaya hótelum og Edition hótelinu í hádeginu í dag. Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 18 næstkomandi þriðjudag. Verði verkfallsboðunin samþykkt hefjast þau verkföll á hádegi þriðjudaginn 15. febrúar.
Kjaraviðræður 2022-23 Kjaramál Dómsmál Tengdar fréttir Ráðuneytið vísar frá kærunni sem Efling dró til baka Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur vísað frá stjórnsýslukæru Eflingar vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Efling skaut kærunni í gær til héraðsdóms vegna þess hve félagið taldi ráðuneytið lengi að afgreiða kæruna. 3. febrúar 2023 09:44 Örlagaríkur dagur runninn upp í sögulegri deilu Spennan er farin að magnast í kjaradeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins. Beðið er eftir að atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun tvö hefjist, beðið er eftir málflutningi í máli Eflingar og ríkissáttasemjara fyrir héraðsdómi og sömuleiðis málflutnings í máli Eflingar og SA fyrir félagsdómi. Þá liggur fyrir dómstólum að úrskurða hvort umdeild miðlunartillaga sáttasemjara standist lög. 3. febrúar 2023 06:22 Sér ekki möguleika á samningum nema Aðalsteinn stígi til hliðar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að skipa þurfi vararíkissáttasemjara ef kalla eigi Eflingu og Samtök Atvinnulífsins aftur að samningsborðinu. Efling hefur dregið stjórnsýslukæru sína vegna miðlunartillögu sáttasemjara til baka og þess í stað kært hana til héraðsdóms. 2. febrúar 2023 15:50 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Erlent Fleiri fréttir Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Sjá meira
Ráðuneytið vísar frá kærunni sem Efling dró til baka Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur vísað frá stjórnsýslukæru Eflingar vegna miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Efling skaut kærunni í gær til héraðsdóms vegna þess hve félagið taldi ráðuneytið lengi að afgreiða kæruna. 3. febrúar 2023 09:44
Örlagaríkur dagur runninn upp í sögulegri deilu Spennan er farin að magnast í kjaradeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins. Beðið er eftir að atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun tvö hefjist, beðið er eftir málflutningi í máli Eflingar og ríkissáttasemjara fyrir héraðsdómi og sömuleiðis málflutnings í máli Eflingar og SA fyrir félagsdómi. Þá liggur fyrir dómstólum að úrskurða hvort umdeild miðlunartillaga sáttasemjara standist lög. 3. febrúar 2023 06:22
Sér ekki möguleika á samningum nema Aðalsteinn stígi til hliðar Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að skipa þurfi vararíkissáttasemjara ef kalla eigi Eflingu og Samtök Atvinnulífsins aftur að samningsborðinu. Efling hefur dregið stjórnsýslukæru sína vegna miðlunartillögu sáttasemjara til baka og þess í stað kært hana til héraðsdóms. 2. febrúar 2023 15:50