Þögull sem gröfin í skugga þrálátra sögusagna Aron Guðmundsson skrifar 4. júní 2023 07:01 Ange Postecoglou með skoska bikarmeistaratitilinn í höndunum Vísir/Getty Ange Postecoglou, knattspyrnustjóri skoska liðsins Celtic sem í gær tryggði sér þrennuna í Skotlandi, var þögull sem gröfin er hann var spurður út í framtíð sína hjá félaginu. Postecoglou er ítrekað orðaður við stjórastöðuna hjá Tottenham.
Sigur Celtic á Inverness í úrslitaleik skoska bikarsins sá til þess að félagið gulltryggði sér þrennuna í Skotlandi og er nú handhafi þriggja stærstu titla landsins. Árangri fylgir umtal og undir stjórn Postelcoglou hefur Celtic enn á ný gert sig gildandi í skoskri knattspyrnu. Það hefur vakið athygli hjá forráðamönnum enska úrvalsdeildarfélagsins Tottenham sem er í stjóraleit eftir mikil vonbrigði á nýafstöðnu tímabili. Margir bjuggust við því að Postecoglou myndi tjá sig um framtíð sína eftir lokaleik tímabilsins í dag en hann gaf lítið upp. „Ég verðskulda það að njóta þessarar stundar núna líkt og allir aðrir hjá félaginu. Ég hef lagt hart að mér til þess að ná þessu,“ sagði Postecoglou í viðtali við BBC eftir að bikarmeistaratitilinn var í höfn hjá Celtic. „Ég skulda vinum mínum og fjölskyldu það að njóta þessarar stundar. Ég skil af hverju þú ert að spyrja mig að þessu en frá mínu sjónarhorni verðskulda ég það að njóta stundarinnar.“ Sá tímapunktur muni koma að spurningum um framtíð hans verði svarað. „Við höfum ritað okkur á spjöld sögunnar og ég ætla ekki að láta aðra hluti draga athygli mína frá þeirri staðreynd.“ Postecocglou kom sem fremur lítt þekktur þjálfari til Skotlands er hann tók við stjórastöðunni hjá Celtic árið 2021. Hann er fæddur í Grikklandi en alinn upp í Ástralíu og hefur þjálfað lið í báðum þessum löndum en auk þess var hann landsliðsþjálfari Ástralíu á árunum 2013-2017 og nú síðast þjálfari Yokohama í Japan. Undir stjórn Postecoglou hefur Celtic í tvígang orðið skoskur meistari tvö tímabil í röð og það sama gildir um árangur liðsins í skoska deildarbikarnum. Þá varð liðið í dag skoskur bikarmeistari í fyrsta skipti undir stjórn Postacoglou.
Enski boltinn Skoski boltinn Mest lesið Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Körfubolti Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Fleiri fréttir Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Leik lokið: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Sjá meira