Margir á lausu til að taka við Palace

Frank Lampard og Steven Gerrard, gömlu félagarnir úr enska landsliðinu, …
Frank Lampard og Steven Gerrard, gömlu félagarnir úr enska landsliðinu, koma báðir til greina í starfið hjá Crystal Palace. AFP/Eddie Keogh

Eftir að Crystal Palace sagði upp knattspyrnustjóranum Patrick Vieira í morgun eru margir nefndir til sögunnar þegar rætt er um mögulegan arftaka hans.

Einir sex sem hafa starfað sem knattspyrnustjórar í ensku úrvalsdeildinni til skamms tíma eru atvinnulausir núna.

Rafael Benítez, Steven Gerrard, Frank Lampard, Scott Parker, Jesse Marsch og Ralph Hassenhüttl eru í hópi þeirra sem eru taldir koma til greina.

Paddy McCArthy, þjálfari 21-árs liðs Crystal Palace, mun stýra liðinu á sunnudag þegar það heimsækir Arsenal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert