Óþol í garð spandex-klæddra riddara götunnar sprakk út með látum á vef lögreglunnar Jakob Bjarnar skrifar 26. febrúar 2021 14:02 Miklar og heitar umræður hafa skapast á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir að hún greindi meðal annars frá því að hjólreiðamenn mega ekki vera á götum þar sem hámarkshraði fer yfir 30 km/klst. vísir/vilhelm Hjólreiðamenn segjast hvergi mega vera og öll úrræði vanti.
Þetta kemur meðal annars fram í fjölmörgum athugasemdum á Facebook-vef lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru hjólreiðar í borginni til umræðu og óhætt er að segja að skoðanaskipti hafi verið mikil og harkaleg. „Vegfarandi sendi lögreglu meðfylgjandi mynd og lagði fram spurningu hvort það væri löglegt að hjóla á miðri götu og valda umferðartöfum á vegi þar sem 50 km hámarkshraði er leyfður. Því er til svars að það er ekki heimilt að hjóla á miðri götu þar sem hámarkshraði er leyfður meiri en 30 km/klst,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. Þar er tíundað að samkvæmt umferðarlögum um sérreglur fyrir reiðhjól komi fram að hjólreiðamaður skal að jafnaði hjóla í akstursstefnu á hjólastíg eða hjólarein eða hægra megin á akrein þeirri sem lengst er til hægri á akbraut sem er ætluð almennri umferð. Hinir freku spandexriddarar „Annað ákvæði um sérreglur fyrir reiðhjól er ákvæði um að á vegi þar sem leyfður hámarkshraði er ekki meiri en 30 km á klst. er hjólreiðamanni heimilt að hjóla á miðri akrein, enda gæti hann fyllsta öryggis og haldi hæfilegum hraða.“ Vegfarandi sendi lögreglu meðfylgjandi mynd og lagði fram spurningu hvort það væri löglegt að hjóla á miðri götu og...Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Föstudagur, 26. febrúar 2021 Þar sem að leyfður hámarkshraði er 50 km á klst. á Eiðsgranda þar sem myndin er tekin er því bannað að hjóla á miðri akrein. Ljóst er að þolinmæði margra gagnvart hjólreiðafólki er orðin af mjög skornum skammti. Það sýnir sig í áköfum umræðum sem myndast undir þessari tilkynningu lögreglunnar: „Þessir spandexriddarar geta líka bara notast við hjólastíg sem er þarna til hægri við þá og ekki vera að skapa sér og öðrum hættu með þessari frekju,“ segir Bjarni Jónsson í athugasemd. Hjólreiðafólk telur sig grátt leikið Þegar þetta er skrifað hafa eitt þúsund manns tjáð sig með emoji, fjögur hundruð skrifað athugasemd og 124 deilt færslunni. Hér er um sjóðheitt mál að ræða og skiptist fólk í tvö horn. Hjólreiðafólk telur sig grátt leikið og lætur ekki sitt eftir liggja. Pálína S. Biasone Sigurðardóttir er ágætur fulltrúi fyrir þann hóp: Mér finnst fólk voðalega duglegt að pirrast yfir hjólreiðafólki. Það má ekki vera á götunni og það má ekki vera á gangstéttum og eiginlega ekki heldur á hjólastígum, því það hjólar svo hratt. Ég sé ekki að þetta fólk sé nokkuð hættulegra en ökumenn sem keyra yfir á rauðu eða yfir hámarkshraða eða hvað sem er.“ Ekki tókst að ná í Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjón vegna málsins en ljóst er að hér er pottur brotinn; í málefnum hjólreiðamanna í Reykjavík.
Umferðaröryggi Umferð Hjólreiðar Lögreglan Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Innlent Fleiri fréttir Fara í það minnsta fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Sjá meira