Sekta Ríkisútvarpið, Sýn og Hringbraut vegna auglýsinga Samúel Karl Ólason skrifar 22. október 2021 19:58 Ríkisútvarpið, Sýn og Hringbraut voru sektuð af fjölmiðlanefnd. Vísir/Vilhelm Fjölmiðlanefnd birti undir kvöld nokkrar ákvarðanir þar sem fyrirtæki og fólk var sektað vegna ólögmætra auglýsinga. Ríkisútvarpið, Sýn og Hringbraut voru sektuð en nefndin ákvað að sekta ekki forsvarsmenn tveggja hlaðvarpa þar sem lög voru brotin.
Fjölmiðlanefnd sektaði Ríkisútvarpið fyrir að brjóta lög með því að birta auglýsingar í tengslum við Sögur- verðlaunahátíð barnanna. Nefndin metur þann dagskrárlið ætlaðan börnum yngri en tólf ára. Samkvæmt lögum um fjölmiðla eru auglýsingar og fjarkaupainnskot bönnuð í dagskrá fyrir börn á þeim aldri. Í ákvörðun nefndarinnar segir að kvörtun hafi borist frá Sýn hf. og að Ríkisútvarpið hafi verið sektað um hálfa milljón króna vegna brotsins. Fjölmiðlanefnd sektaði einnig Sýn vegna brota á lögum um fjölmiðla um duldar auglýsingar, vöruinnsetningar, bann við viðskiptaboðum fyrir áfengi og kostun efnis í Rauðvín og klakar á Stöð 2 eSport og Vísi. Nefnd eru mörg dæmi um brot fyrr á árinu og því síðasta. Þá segir að Fjölmiðlanefnd hafi ekki talið ástæðu til að falla frá sekt vegna fyrri brota á lögum um fjölmiðla. Þó hafi verið tekið tillit til þess að um tilraunaverkefni í sjónvarpi hér á landi sé að ræða og sjónvarpsþætti með óhefðbundnum efnistökum á sjónvarpsstöð sem sé til þess fallin að höfða til ungs fólks og vekja athygli á rafíþróttum sem áhugamáli og íþróttagrein. Sýn var einnig sektuð um hálfa milljón króna. Vísir er í eigu Sýnar. Hringbraut með hæstu sektina Fjölmiðlanefnd sektaði einnig Hringbraut fyrir brot á lögum um fjölmiðla. Það var fyrir dulin viðskiptaboð og hlutfall viðskiptaboða í þáttunum Einfalt að eldast og Allt annað líf sem sýndir voru í fyrra og árið 2019. Nefndin segir að Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. hafi brotið lög um dulin viðskiptaboð í báðum þáttunum. Nefndin komst einnig að þeirri niðurstöðu að báðir þættirnir, Einfalt að eldast og Allt annað Líf, hafi í heild sinni talist til viðskiptaboða. Hringbraut var því sektuð um 750 þúsund krónur fyrir hvern þátt, eða samtals eina og hálfa milljón króna. Fram kom á Vísi fyrr í dag að Fjölmiðlanefnd hefði einnig sektað hlaðvarpið Dr. Football og sent stefnuvott að heimil Hjörvars Hafliðasonar, eiganda hlaðvarpsins. Fjölmiðlanefnd birti einnig úrskurð um að lög um skráningarskyldu fjölmiðla og auglýsingar fyrir happdrættis- og veðmálastarfsemi hefðu verið brotin í hlaðvarpinu Steve Dagskrá. Kvörtun hafi borist frá Íslenskum getraunum vegna auglýsinga fyrir Coolbet á Íslandi. Hlaðvörpin ekki sektuð Ákveðið var að sleppa Steve Dagskrá ehf. við sekt. Að hluta til vegna þess að brugðist var við fyrsta erindi Fjölmiðlanefndar og að reglur hefðu ekki verið brotnar áður í hlaðvarpinu. Fjölmiðlanefnd birti þar að auki úrskurð vegna kvörtunar gegn Huga Halldórssyni, fjölmiðlaveitu hlaðvarpsins FantasyGandalf, sem heitir nú The Mike Show. Þar hafi verið brotið gegn lögum um fjölmiðla og þá sérstaklega skráningarskyldu, bann við viðskiptaboðum fyrir áfengi og bann við viðskiptaboðum fyrir happdrættis- og veðmálastarfsemi, sem ekki hefur leyfi lögum samkvæmt hér á landi. Þar var einnig ákveðið að beita ekki sektum vegna því að stjórnendur hlaðvarpsins brugðust fljótt við erindi Fjölmiðlanefndar. Framsetningu viðskiptaboða hafi verið breytt og auglýsingum um veðmálastarfsemi hætti. Þar að auki hefðu reglur ekki verið brotnar áður í hlaðvarpinu.
Fjölmiðlalög Fjölmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Ríkisútvarpið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Viðskipti erlent Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkanir Neytendur Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent „Enda hefði hún hreinlega ekki nennt að þræta við mig endalaust“ Atvinnulíf Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Viðskipti erlent Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Sjá meira