Efling – stéttarfélag hafnar lögmæti miðlunartillögu sem ríkissáttasemjari lagði fram í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stéttarfélaginu.

Í tilkynningunni segir að tillaga ríkissáttasemjara hafi verið lögð fram með flýti og án samráðs við Eflingu. Að mati Eflingar hafi ríkissáttasemjari brotið ákvæði laga um stéttarfélög og vinnudeilur um samráð við deiluaðila, sem beri að viðhafa áður en miðlunartillaga sé lögð fram.

Efling fordæmir vinnubrögð ríkissáttasemjara og segir tillöguna „algjörlega samhljóða“ síðasta tilboði Samtaka atvinnulífsins. Verið sé að þröngva afstöðu annars aðila upp á hinn.

„Auk þess gengur miðlunartillaga ríkissáttasemjara gegn öllum venjum í samskiptum aðila vinnumarkaðarins, þar sem tíðkast hefur að miðlunartillögur fari bil beggja. Hin svokallaða miðlunartillaga felur í sér að afstöðu annars aðilans er þröngvað upp á hinn. Tillagan er algjörlega samhljóða síðasta tilboði Samtaka atvinnulífsins. Ekkert tillit var tekið til sjónarmiða Eflingar í tillögunni.“

Ólýðræðisleg atkvæðagreiðsla

Efling bendir á að til þess að miðlunartillögu sé hafnað, samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nægi ekki að henni sé hafnað af meirihluta greiddra atkvæða. Mótatkvæði þurfi að vera fjórðungur af öllum á kjörskrá.

„Þetta fyrirkomulag atkvæðagreiðslu er ólýðræðisleg og íþyngjandi, sem setur enn frekari spurningarmerki við það samráðsleysi sem embætti ríkissáttasemjara sýnir gagnvart Eflingu.“