Fótbolti

Svíar á toppi B-riðils | Ronaldo með enn eina þrennuna

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Cristiano Ronaldo heldur bara áfram að skora.
Cristiano Ronaldo heldur bara áfram að skora. Carlos Rodrigues/Getty Images

Alls fóru fram 14 leikir í undankeppni HM 2022 í kvöld. Svíar lyftu sér upp fyrir Spánverja í efsta sæti B-riðils með 2-0 sigri gegn Grikkjum og Cristiano Ronaldo skoraði þrennu þegar að Portúgal vann öruggan 5-0 sigur gegn Lúxemborg svo eitthvað sé nefnt.

Ronaldo var búinn að koma Portúgal í 2-0 eftir aðeins 13 mínútur gegn Lúxemborg, en bæði mörkin komu af vítapunktinum. Bruno Fernandes breytti stöðunni í 3-0 fimm mínútum síðar og þannig var staðan í hálfleik.

Joao Palhinha skoraði fjórða mark Portúgal þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka, en það var Cristiano Ronaldo sem innsyglaði 5-0 sigur þegar hann fullkomnaði þrennu sína stuttu fyrir leikslok. Þetta var tíunda þrenna kappans fyrir portúgalska landsliðið.

Emil Forsberg kom Svíum yfir af vítapunktinum eftir tæplega klukkutíma leik áður en Alexander Isak tryggði liðinu 2-0 sigur tíu mínútum síðar. Pantelis Hatzidiakos nældi sér í tvö gul spjöld með stuttu millibili nokkrum mínútum síðar og Grikkir spiluðu því seinustu mínúturnar manni færri.

Litháen tók á móti Sviss í C-riðli, en tvö mörk frá Breel Embolo og eitt frá Renato Steffen sáu til þess að staðan var 3-0 í hálfleik, Svisslendingum í vil. Mario Gavranovic gulltryggði 4-0 sigur Svisslendinga með marki á fjórðu mínútu uppbótartíma, en liðið er nú í öðru sæti riðilsins með 14 stig.

Lyndon Dykes reyndist hetja Skota gegn Færeyingum, en hann skoraði eina mark leiksins á 86. mínútu þegar liðin mættust í F-riðli. Skotar eru nú í góðum málum í öðru sæti riðilsins með 17 stig, sjö stigum minna en Danir sem tryggðu sér sæti á HM með sigri í kvöld.

Pólverjar unnu mikilvægan 1-0 sigur gegn Albönum í I-riðli þar sem að Karol Swiderski skoraði eina mark leiksins á 77. mínútu. Albönsku stuðningsmennirnir létu öllum illum látum og fleygðu dóti og drasli í átt að fagnaðarlátum pólsku leikmannanna, sem leiddi til þess að pólska liðið gekk af velli.

Eftir að leikurinn hafði verið stopp í nokkrar mínútur náðist þó að klára hann að lokum, og Pólverjar unnu virkilega mikilvægan sigur og lyftu sér upp fyrir Albani í annað sæti riðilsins.

Úrlsit kvöldsins

A-riðill

Portúgal 5-0 Lúxemborg

Serbía 3-1 Aserbaídsjan

B-riðill

Kósovó 1-2 Georgía

Svíþjóð 2-0 Grikkland

C-riðill

Búlgaría 2-1 N-Írland

Litháen 0-4 Sviss

D-riðill

Kasakstan 0-2 Finnland

Úkraína 1-1 Bosnía og Hersegóvina

F-riðill

Danmörk 1-0 Austurríki

Færeyjar 0-1 Skotland

Ísrael 2-1 Moldavía

I-riðill

Albanía 0-1 Pólland

England 1-1 Ungverjaland

San Marínó 0-3 Andorra


Tengdar fréttir

Englendingar misstigu sig gegn Ungverjum

Englendingar og Ungverjar gerðu 1-1 jafntefli þegar að liðin mættust á Wembley í undankeppni HM 2022 í kvöld. Sigur hefði tryggt Englendingum umspilssæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×