Vegleg 20. RIFF-hátíð

Dagskrá hátíðarinnar var kynnt á fundi á Hagatorgi í hádeginu …
Dagskrá hátíðarinnar var kynnt á fundi á Hagatorgi í hádeginu í dag. mbl.is/Eyþór

Tutt­ug­asta RIFF-kvik­mynda­hátíðin hefst í Reykja­vík 28. sept­em­ber og stend­ur til 8. októ­ber. Opn­un­ar­mynd hátíðar­inn­ar að þessu sinni er Til­ver­ur, sem er frum­raun Ninnu Pálma­dótt­ur, en loka­mynd­in er Poor Things eft­ir Yorgos Lant­himos sem ný­verið hlaut verðlaun­in Gullna ljónið í Fen­eyj­um.

Kem­ur þetta fram í frétta­til­kynn­ingu frá aðstand­end­um RIFF sem kveða hátíðina veg­lega þar sem því verði nú fagnað að hún er hald­in í tutt­ug­asta skiptið. Sýnd­ar verða yfir 80 kvik­mynd­ir í fullri lengd auk fjölda stutt­mynda frá alls 63 lönd­um.

„Sýn­ing­ar í þessa ell­efu daga fara fram í Há­skóla­bíói sem er aðal­sýn­ing­arstaður RIFF, en jafn­framt í Nor­ræna hús­inu og í Slipp­bíói. Auk þess verður kvik­mynda­dag­skrá RIFF út um alla borg - í litl­um versl­un­um, bóka­söfn­um, gróður­hús­inu Lækj­ar­torgi, hvala­skoðun­ar­báti og hót­el­um und­ir nafn­inu RIFF um um bæ­inn.“

Íslensk­ar verðlaunastutt­mynd­ir sýnd­ar

Seg­ir í til­kynn­ing­unni að mynd­irn­ar eigi það sam­merkt að end­ur­spegla það besta sem alþjóðleg kvik­mynda­gerð hef­ur upp á að bjóða. Um sé að ræða nýj­ar gæðamynd­ir af ýmsu tagi eft­ir vel þekkta leik­stjóra á borð við Luca Guar­dagn­ino, Wim Wend­ers, Werner Herzog, Cat­her­ine Breillat, Ang­elu Schanelec og Yorgos Lant­himos yfir í fram­sækn­ar kvik­mynd­ir eft­ir nýja leik­stjóra sem keppa um Gullna lund­ann.

„Í til­efni 20. hátíðar­inn­ar verða þær ís­lensku stutt­mynd­ir sem hafa hlotið verðlaun á RIFF í gegn­um árin sýnd­ar og fram fer veg­leg ljós­mynda­sýn­ing úr sögu RIFF í Nor­ræna hús­inu, á stöpl­um í Póst­hús­stræti auk þess sem Há­skóla­bíói verður breytt í alls­herj­ar menn­ing­armiðstöð með list­sýn­ing­um, sæl­kera­veit­ing­um fyr­ir svanga og þyrsta og huggu­legri bíó­stemn­ingu. Keppni fer fram um hver sér flest­ar mynd­ir á RIFF og verður viðkom­andi boðið í veg­legt loka­hóf hátíðar­inn­ar þann 7. októ­ber,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

„Heiðurs­gest­ir RIFF árið 2023 eru: Isa­belle Anne Madeleine Hupp­ert (f. 1953), stór­stjarna í franskri kvik­mynda­gerð en fer­ill henn­ar spann­ar rúm 50 ár og á hún allt að 150 hlut­verk í kvik­mynd­um og sjón­varpi að baki. Fer­ill Hupp­ert er stjörn­um prýdd­ur af viður­kenn­ing­um sem end­ur­spegla ein­staka hæfi­leika henn­ar.“

Staður blaðamannafundarins var nokkuð sérstakur, en hann fór fram á …
Staður blaðamanna­fund­ar­ins var nokkuð sér­stak­ur, en hann fór fram á haga­torgi við Há­skóla­bíó. mbl.is/​Eyþór

Villt­ustu vist­kerfi

Þá er franski heim­ild­ar­mynda­gerðarmaður­inn Luc Jacqu­et (f. 1967) meðal heiðurs­gesta. „Með ein­beitt­um vilja og brenn­andi ástríðu fyr­ir undr­um jarðar, fara mynd­ir Jacqu­ets með áhorf­end­ur í stór­kost­legt ferðalag til villt­ustu vist­kerfa plán­et­unn­ar. Jacqu­et fékk snemma áhuga á nátt­úr­unni og dýra­rík­inu sem leiddi til þess að hann tók meist­ara­próf í dýra­líf­fræði og vist­fræði. Í ein­um af leiðöngr­um sín­um tók Jacqu­et að sér hlut­verk mynda­töku­manns fyr­ir kvik­mynd Hans-Ulrich Schlumpf, Þing mörgæs­anna (1993),“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Þýsk-lúx­em­borgíska stór­leik­kon­an Vicky Krieps (f. 1983) er þriðji heiðurs­get­ur­inn. Hún var heiðruð sem besta leik­kon­an á 35. Evr­ópsku kvik­mynda­verðlaun­un­um sem hald­in voru í Reykja­vík í des­em­ber fyr­ir túlk­un sína á Elísa­betu Aust­ur­rík­is­keis­araynju í Cor­sa­ge (2022) eft­ir Marie Kr­eutzer.

„Fer­ill Krieps byrjaði að blómstra um miðjan síðasta ára­tug þegar hún hreppti hvert hlut­verkið á fæt­ur öðru í ýms­um stór­um kvik­mynda­verk­efn­um. Hún sýndi hæfi­leika sína í The Young Karl Marx (2017) og Gut­land (2019), en það var mögnuð frammistaða henn­ar í Óskar­sverðlauna­mynd­inni Phantom Thread (2017) eft­ir Paul Thom­as And­er­son sem skaut henni upp á stjörnu­him­in­inn,“ seg­ir af Krieps.

RIFF, Alþjóðleg Kvikmyndahátíð í Reykjavík, er nú haldin í tuttugasta …
RIFF, Alþjóðleg Kvik­mynda­hátíð í Reykja­vík, er nú hald­in í tutt­ug­asta skiptið. Ljós­mynd/​Aðsend

Far­sælt sam­starf

Fjórði og síðasti heiðurs­gest­ur er Luca Gua­dagn­ino (f. 1971), ít­alsk­ur kvik­mynda­gerðarmaður „þekkt­ur fyr­ir ein­læg­ar, hjart­næm­ar og list­ræn­ar kvik­mynd­ir. Gua­dagn­ino sló í gegn með róm­an­tísku drama­mynd­inni I Am Love (2009), með Til­du Sw­int­on í aðal­hlut­verki, sem hlaut alls 14 mik­ils met­in kvik­mynda­verðlaun. Þetta markaði upp­hafið af far­sælu sam­starfi þeirra tveggja, sem hélt áfram með mar­grómuðum mynd­um eins og A Big­ger Splash (2015) og end­ur­gerð á Su­spiria eft­ir Dario Arg­ento (2018)“, segja aðstand­end­ur hátíðar­inn­ar í til­kynn­ingu sinni.

Stikla hátíðar­inn­ar:

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Steingeit

Sign icon Gamlir vinir koma til sögunnar og það verður þér til mikillar ánægju að rifja upp gömul kynni og stofna til nýrra. Reyndu að láta það eftir þér að njóta lífsins.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Arn­ald­ur Indriðason
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Steingeit

Sign icon Gamlir vinir koma til sögunnar og það verður þér til mikillar ánægju að rifja upp gömul kynni og stofna til nýrra. Reyndu að láta það eftir þér að njóta lífsins.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Arn­ald­ur Indriðason