Grófu glataða gullaldarborg upp úr sandinum í Egyptalandi Kjartan Kjartansson skrifar 9. apríl 2021 14:00 Heillegir veggir borgarinnar Aten. Borgin er talin um þrjú þúsund ára gömul. AP/Miðstöð Zahis Hawass um Egyptaland til forna Fornleifafræðingar í Egyptalandi tilkynntu í dag að þeir hefðu fundið þrjú þúsunda ára gamla borg sem hefur legið grafið undir sandi. Fundurinn er sagður einn sá stærsti frá því að gröf Tútankamons faraós fannst á fyrri hluta 20. aldar.
Borgin Aten er nærri Lúxor en hún fannst skömmu eftir að uppgröftur hófst á svæðinu í september. Zahi Hawass, einn helsti sérfræðingur heims í sögu fornegypta, segir að þetta sé stærsta forna borgin sem hefur nokkru sinni fundist í Egyptalandi, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Aten er frá tíð Amenhotep þriðja, ein voldugasta faraós Egyptalands til forna, sem ríkti frá 1391 til 1353 fyrir krist. Það er talin gullöld Egyptaland til forna. Borgin var einnig notuð í tíð Tútankamons faraós, barnabarns Amenhotep, og Ay, arftaka hans. Rústir borgarinnar við vesturbakka Nílafljóts eru sagðar vel varðveittar. Þar hafa fundist heillegir veggir, herbergi með tækjum og tólum, skartgripir, málaðir leirmunir, verndargripir og múrsteinar með innsigli faraósins. Þegar er búið að grafa upp heilu hverfi borgarinnar með bakaríi, stjórnsýslubyggingum og íbúðarhúsum. Fornleifauppgröfturinn stendur enn yfir og býst Hawass við því að finna enn fleiri ómetanleg verðmæti. Betsy Brian, prófessor í Forn-Egyptalandi við Johns Hopkins-háskóla í Bandaríkjunum, segir BBC að eingöngu fundur grafhýsis Tútankamons árið 1922 standi uppgötvuninni á Aten framar. Borgin geti gefið fræðimönnum innsýn inn í hvernig Egyptar til forna höguðu lífi sínu þegar veldi þeirra stóð sem hæst. Verndargripur í líki taðuxa sem fannst í borginni fornu.AP/Miðstöð Zahis Hawass um Egyptaland til forna
Egyptaland Vísindi Fornminjar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Innlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Fleiri fréttir Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent