Mun algengara að konan sé heima með börnin þegar skólum er lokað Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 14. janúar 2022 13:08 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það sé jafnréttismál að halda skólum opnum. Vísir/Vilhelm Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að það sé bæði prinsipp- og jafnréttismál, að halda skólum opnum eins og hægt er, í gegnum kórónuveirufaraldurinn.
Ríkisstjórnin kynnti í dag hertari samkomutakmarkanir vegna faraldursins. Tíu mega koma saman í stað tuttugu, auk ýmissa annara hertari takmarkana. Engin breyting verður þó gerð á gildandi reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttarinnar. Þar er áfram miðað við að ekki skuli vera fleiri en tuttugu fullorðnir einstaklingar í hverju rými, svo dæmi séu tekin. Algengara að konurnar séu heima með börnin verði skólum lokað Skólastarf er víða skert vegna faraldursins og eru rúmlega 2.500 börn undir eftirliti Covid-göngudeildarinnar. Forsætisráðherra segir að það sé einfaldlega prinsipp-mál að halda skólum opnum eins og hægt sé. „Við tókum þá ákvörðun, þá prinsipp-ákvörðun, í upphafi þessa faraldurs að við ætluðum að reyna að viðhalda skólastarfi eins og unnt væri til þess að tryggja það að börnin í landinu njóti menntunar og tryggja ákveðna rútínu fyrir börn. Sú aðgerð var líka mjög mikilvæg jafnréttisaðgerð. Það skiptir máli ef skólum er lokað, þá vitum við auðvitað að það er mun algengara að konurnar séu heima með börnin. Við höfum bara staðið með þessu prinsippi,“ sagði Katrín fyrir utan ráðherrabústaðinn í dag eftir að hertar aðgerðir voru kynntar. Langtímahagsmunir væri undir að halda skólum opnum. „Það þýðir auðvitað, eins og við vitum, að það koma upp smit í skólum og einstaka sinnum þarf að loka skólum. Eigi að síður erum við að sjá meira skólahald hér sem ég held að skipti gríðarlegu máli til lengri tíma ef við hugsum til langtímahagsmuna,“ sagði Katrín. Þá sagði Willum Þór Þórsson að umrædd skólareglugerð hafi orðið til í samráði við skólayfirvöld, samráði sem færi fram á hverjum degi. „Sú skólareglagerð varð til í þéttu samtali, daglegu samtali, skólayfirvalda og skólamálaráðherra með þátttöku heilbrigðisráðuneytis. Þannig að sú skólareglugerð var til í gegnum samtal og það verður áfram, þetta daglega samtal,“ sagði Willum Þór. Minnisblað sóttvarnalæknis má sjá að neðan. Tengd skjöl Minnisblad13012022PDF339KBSækja skjal
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Jafnréttismál Skóla - og menntamál Grunnskólar Leikskólar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Tíu mega koma saman Sóttvarnaraðgerðir verða hertar og taka þær gildi á miðnætti. Heilbrigðisráðherra segir að sóttvarnalæknir hafi lagt fram þrjár leiðir: Óbreyttar aðgerðir, færa samkomutakmarkanir úr tuttugu manns í tíu, eða lokun á samfélaginu í tíu daga. Ríkisstjórnin hafi valið leið tvö. 14. janúar 2022 12:03 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira
Tíu mega koma saman Sóttvarnaraðgerðir verða hertar og taka þær gildi á miðnætti. Heilbrigðisráðherra segir að sóttvarnalæknir hafi lagt fram þrjár leiðir: Óbreyttar aðgerðir, færa samkomutakmarkanir úr tuttugu manns í tíu, eða lokun á samfélaginu í tíu daga. Ríkisstjórnin hafi valið leið tvö. 14. janúar 2022 12:03