Leitin að skipverjanum ekki enn borið árangur Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Fanndís Birna Logadóttir skrifa 5. desember 2022 19:46 Guðmundur Birgir Agnarsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni. Leitinni að karlmanni, sem féll frá boði línuskipsins Sighvats GK-57 í Faxaflóa á laugardag var haldið áfram í dag. Hún hefur þó ekki borið árangur og henni hætt í kvöld. Leit hefst aftur í morgunsárið með varðskipi Landhelgisgæslunnar en óákveðið er hvort þyrlan verði kölluð út.
Áhöfn varðskipsins Þórs og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hafa farið fyrir leitinni ásamt aðstoð björgunarbáta frá Landsbjörg. Leitarsvæðið var stækkað í dag og er um 25 sjómílur norðvestur af Garðskaga. „Aðstæður hafa verið góðar og aðgerðir tækjanna, skipa og þyrlu, hafa gengið vel en leit hefur ekki skilað árangri,“ segir Guðmundur Birkir Agnarsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni, um málið en leit hefur verið hætt í dag. Leit verður haldið áfram strax í birtingu á morgun og er ráðgert að varðskipið verði á svæðinu en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort þyrlan verði notuð. Þá verður leitarsvæðið stækkað. „Leitarsvæðin í raun og veru stækka alltaf sjálfkrafa eftir því sem frá líður vegna vaxandi óvissuþátta en við reynum að einbeita okkur auðvitað að svona kjarna svæðisins með þeim tækjum sem við munum hafa þá. Við verðum alla vega með varðskipið en við erum ekki búin að sjá hvort það verði fleiri tæki, fleiri skip eða loftför,“ segir Guðmundur. Aðgerðirnar voru sem mestar á laugardag og í gær, tóku alls 15 skip og bátar auk þyrlu Landhelgisgæslunnar þátt í leitinni þegar mest var. „Þetta er búið að vera mjög umfangsmikil aðgerð og auðvitað leggjum við mesta kraftinn í hana í upphafi. Leitin hófst í myrkri og við leituðum þar fram á nótt en svo var ákveðið að draga úr leitinni og hvíla mannskapinn,“ segir Guðmundur. Lögregla tók skýrslu af skipstjóra Sighvats, sem er í eigu Vísis hf. í Grindavík, í morgun en telur ljóst að um sé að ræða hörmulegt slys. Þá sagði Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur þar sem maðurinn er búsettur, í samtali við fréttastofu í dag að samfélagið í Grindavík sé harmi slegið og bíði þess að skipverjinn finnist.
Leit að skipverja á Sighvati GK-57 Grindavík Samgönguslys Sjávarútvegur Landhelgisgæslan Tengdar fréttir Skýrsla tekin af skipstjóranum í morgun Lögreglan á Suðurnesjum tók skýrslu af skipstjóra Sighvats GK-57, sem er í eigu Vísis hf. í Grindavík, í morgun. Skipverji féll frá borði Sighvats síðdegis á laugardag í Faxaflóa og stendur leit að honum enn yfir. 5. desember 2022 14:31 Leitarsvæðið á Faxaflóa stækkað í dag Leit að skipverja, sem féll útbyrðis af fiskiskipi á laugardag, heldur áfram í dag. Leitarsvæðið hefur verið stækkað nokkuð en bæði varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar og leitarskip björgunarsveita munu taka þátt í leitinni. 5. desember 2022 10:50 Sjómaðurinn sem leitað er var skipverji á Sighvati GK-57 í eigu Vísis hf. Sjómaðurinn sem leitað hefur verið að frá því á laugardag féll frá borði Sighvats GK-57, línuskips í eigu Vísis hf. Frá þessu er greint í tilkynningu frá útgerðarfélaginu sem Morgunblaðið hefur undir höndum. 5. desember 2022 08:47 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Erlent Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Innlent Fleiri fréttir „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sjá meira
Skýrsla tekin af skipstjóranum í morgun Lögreglan á Suðurnesjum tók skýrslu af skipstjóra Sighvats GK-57, sem er í eigu Vísis hf. í Grindavík, í morgun. Skipverji féll frá borði Sighvats síðdegis á laugardag í Faxaflóa og stendur leit að honum enn yfir. 5. desember 2022 14:31
Leitarsvæðið á Faxaflóa stækkað í dag Leit að skipverja, sem féll útbyrðis af fiskiskipi á laugardag, heldur áfram í dag. Leitarsvæðið hefur verið stækkað nokkuð en bæði varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar og leitarskip björgunarsveita munu taka þátt í leitinni. 5. desember 2022 10:50
Sjómaðurinn sem leitað er var skipverji á Sighvati GK-57 í eigu Vísis hf. Sjómaðurinn sem leitað hefur verið að frá því á laugardag féll frá borði Sighvats GK-57, línuskips í eigu Vísis hf. Frá þessu er greint í tilkynningu frá útgerðarfélaginu sem Morgunblaðið hefur undir höndum. 5. desember 2022 08:47