Innlent

Molnaði úr veggjum í skjálftanum: „Fannst eins og sprengju hefði verið varpað á húsið“

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri Ungmennafélgas Grindavíkur.
Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri Ungmennafélgas Grindavíkur. samsett mynd

Steypa molnaði úr veggjum og ryk féll úr lofti HS-orkuhallarinnar í Grindavík eftir jarðskjálfta upp á 4,2 sem reið yfir klukkan 19:14 í kvöld, einni mínútu áður en flautað var til leiks í viðureign Grindavíkur og Hattar í Domino‘s deildinni í körfubolta.

„Þetta var svolítið mikið högg, miklu meira heldur en manni finnst þegar maður sér myndband af þessu. Ég veit alveg af fólki þar sem að hlutir voru að hrynja niður úr hillunum hjá þeim, sem hefur ekki verið hingað til í skjálftunum en höggið var það mikið að það voru myndir að detta niður af veggjum veit ég í Grindavík í kvöld,“ útskýrir Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri Ungmennafélags Grindavíkur, í samtali við Vísi.

Molar úr veggnum

Margir fyrri skjálftar hafa átt upptök sín við Fagradalsfjall en skjálftinn sem um ræðir átti upptök sín um tveimur kílómetrum norður af Grindavík. „Okkur fannst bara eins og sprengju hefði verið varpað á húsið, þetta var svo mikill hvellur einhvern veginn. Þetta var alveg frekar scary,“ segir Jón Júlíus.

Nokkur ummerki eru einnig eftir skjálftann í byggingunni líkt og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði. „Það kom ekki sprunga í sjálfan vegginn heldur bara þar sem pústingin hefur verið yfir á bitasamskeytunum. Það kom alveg ryk niður úr loftinu þegar að skjálftinn kom,“ segir Jón Júlíus.

„Hann Andrew heldur þarna á nokkrum molunum sem komu úr veggnum,“ bætir hann við en hann birti meðfylgjandi mynd á Twitter af Andrew Horne, sem stóð vaktina á bakvið myndavélina í leik kvöldsins.

Aðspurður segir hann að svo virðist sem jarðskjálftinn hafi þó ekki fengið mikið á leikmenn liðanna sem áttust við í kvöld. „Bæði lið skoruðu alveg 50 stig í fyrri hálfleik, en það er kannski bara varnarlega sem menn voru eitthvað skelkaðir,“ svarar Jón Júlíus, en Höttur vann fremur óvæntan sigur á Grindavík, 96-89.

Áhorfendur klöppuðu

„Það verður að gefa þeim frá Egilsstöðum töluvert hrós fyrir að þeir höndluðu þennan skjálfta töluvert betur en við. En ég horfði á dómarana aðeins og þeim leið ekki vel og ég get alveg ímyndað mér hvernig þetta var fyrir erlendu leikmennina og kannski þá sem eru, eins og þeir sem eru að austan og hafa kannski aldrei upplifað jarðskjálfta, þarna fengu þeir einn stórann. Þetta var bara hálfri mínútu fyrir leik.“ segir Jón Júlíus.

Jarðskjálftinn sást vel í beinni útsendingu frá leiknum sem var hafin þegar skjálftinn reið yfir. Lýsendur leiksins fóru ekki varhluta af skjálftanum og áhorfendur sem staddir voru í höllinni ekki heldur.

„Ég hef aldrei verið í svona miklu fjölmenni í jarðskjálfta og það fóru allir að klappa, eins og Íslendingar gera alltaf í svona aðstæðum. Þetta var svona „klassískur Íslendingur í matsalnum“ sem veit ekkert betra að gera en að klappa,“ segir Jón Júlíus og hlær.

„Það kom ryk úr loftinu. Við höfum alveg fundið fyrir stærri skjálftum en ég hef ekki fundið fyrir svona miklu höggi áður.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×