Tel mig eiga erindi í þetta

Birkir Valur Jónsson er orðinn leikmaður Spartak Trnava í Slóvakíu.
Birkir Valur Jónsson er orðinn leikmaður Spartak Trnava í Slóvakíu. mbl.is/Árni Sæberg

„Við vorum mættir á æfingasvæðið 7:45 og klukkan er 18:30 hjá mér núna og ég nýkominn heim. Þetta voru tvær æfingar og svo myndbandsfundir. Þetta er alvörubyrjun,“ sagði HK-ingurinn Birkir Valur Jónsson í samtali við Morgunblaðið um dag í lífi atvinnumanns í knattspyrnu.

Birkir gerði á dögunum hálfs árs lánssamning við Spartak Trnava í Slóvakíu. Hefur slóvakíska félagið forkaupsrétt á bakverðinum, sem hafði allan ferilinn leikið með HK í tveimur efstu deildum Íslands áður en hann fór til Slóvakíu. Hefur hann leikið 98 deildarleiki með HK og skorað í þeim sex mörk, þar af þrjú í 30 leikjum í efstu deild. Þá á hann að baki 27 leiki með yngri landsliðum Íslands.

„Aðdragandinn var stuttur, umboðsmaðurinn hringdi í mig tveimur vikum áður en þetta fer í gegn og spurði mig hvort við ættum að skoða þetta betur og hvort ég hefði áhuga á að fara til Slóvakíu. Ég gaf honum auðvitað grænt ljós og svo var þetta staðfest daginn áður en ég flaug út. Ég fékk flugmiða og var kominn út 17 tímum seinna,“ sagði Birkir. Hann hefur áður fundið fyrir einhverjum áhuga félaga erlendis, en þó ekki fengið samningstilboð.

Sjáðu viðtalið við Birki í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins sem kom út í morgun. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert